Í þessum þætti af Sögu hugmyndanna ætlum við að fjalla um drauga. Hvað er draugur? Vissir þú að það eru til nokkrar tegundir af þeim, t.d. fylgjur; mórar og skottur, uppvakningar, afturgöngur og útburðir. Við kynnumst draugum í dag og förum yfir sögu þeirra í gegnum sögurnar okkar.
Draugar koma fram í mörgum þjóðsögum líkt og álfar og tröll og aðrar yfirnáttúrulegar verur. En hvað er þjóðsaga og hvað er þá þjóðtrú?
Spennandi - fróðlegur og pínu hryllilegur þáttur.
Sérfræðingur þáttarins: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Draugurinn Glámur: Viktor Már Bjarnason
Birt
22. okt. 2015
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Saga hugmyndanna
Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá fólki, fyrirbærum og hugmyndum á upplýsandi hátt.