Saga hugmyndanna

Mannréttindi

Í þættinum ætlum við fjalla um mannréttindi.

Hvað eru mannréttindi? Hvað er Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna og hvernig varð hann til? Við heyrum af því af hverju Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar og hvað Þjóðabandalagið, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna og mannréttindi eru.

Hvernig getum við brugðist við ef við verðum vitni mannréttindabrotum?

Mikilvægur þáttur um mannréttindin okkar og sögu þeirra.

Sérfræðingar þáttarins eru: Margrét María Sigurðardóttir umboðsmaður barna og þær Inga Huld Ármann, Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir og Lilja Hrönn Önnu Hrannarsdóttir sem eru allar í ungmennaráði Umboðsmanns barna.

Frumflutt

1. okt. 2015

Aðgengilegt til

16. maí 2024
Saga hugmyndanna

Saga hugmyndanna

Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá fólki, fyrirbærum og hugmyndum á upplýsandi hátt.

Þættir

,