Nýjustu fréttir af Njálu

Tuttugasti og þriðji þáttur

Í þættinum er Einars Ólafs Sveinssonar minnst með lestri úr minningargreinum um hann og flutningi á heillegum kafla úr Njálu um bardagann á Alþingi áður en sættir tókust í brennumálum.

Lestur Einars Ólafs Sveinssonar úr Njálu.

Sögusinfónía Jóns Leifs er kynnt og fluttur kafli úr skýringum Jóns Leifs við þriðja kafla sinfóníunnar: Björn bak Kára. Samnefndur hljómsveitarþáttur er einnig fluttur.

Umsjón: Einar Karl Haraldsson.

(Áður á dagskrá 28. apríl 1984)

Frumflutt

10. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Nýjustu fréttir af Njálu

Nýjustu fréttir af Njálu

Rætt er um hvernig lestri Njálu er háttað, heima og erlendis.

Einar Ólafur Sveinsson les brot úr Njálu í upphafi þáttanna og umsjónarmaður fær til sín gesti til ræða þetta merka rit.

Umsjón: Einar Karl Haraldsson.

Þættir

,