
Mannlegi þátturinn
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við fræddumst í dag um ráð og óráð við bakverkjum.Jósep Blöndal læknir og stofnandi háls- og bakdeildar SFS í Stykkishólmi og einn fremsti baksérfræðingur þjóðarinnar kom í þáttinn. Fólk með bak- og hálsverki fær ótal ráðleggingar, bæði frá fagfólki, en líka frá ættingjum, vinum og samstarfsfólki. Margar slíkar geta verið vita gagnslausar og jafnvel skaðlegar. Jósep fór betur yfir þessi ráð og órað í þættinum.
Við kynntum okkur svo sjónlýsingar á myndlistasýningum. Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona verður einmitt með eina slíka fyrir blinda og sjónskerta á sýningunni Lekir líkamar - sameiginlegir heimar í Listasafni Reykjavíkur á fimmtudaginn, á vitundardegi blindra og sjónskertra. Halla Margrét sagði okkur frá sjónlýsingum og þessari sýningu í dag.
Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið, og með honum kom gestur, Hlynur Sveinsson sem rekur Veðurstofu Norðfjarðar. Það er leitun að öðrum eins veðuráhugamanni, en hann er einmitt staddur í höfuðborginni af því hann er að sækja námskeið hjá Veðurstofunni. Það er spurning hvort þeir félagar Einar og Hlynur verði svo sammála þegar kemur að veðurspánni framundan hér á fróni.
Tónlist í þættinum í dag:
Leiðin heim /Björgvin Halldórsson og Hjartagosarnir (C.Pyle, texti Bragi Valdimar Skúlason)
Gulnuðu laufin / Sigvaldi Helgi Gunnarsson (Sigvaldi Helgi Gunnarsson, texti Andri Már Sigurðsson)
Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason)
The Tide is High / Blondie (J.Holt)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.