• 00:06:09Sólvieg Eiríks - baunir í matargerð
  • 00:22:52Albert Guðmundsson - viðtal frá 1952
  • 00:38:14Elín Sigrún Jónsd. - lesandi vikunnar

Mannlegi þátturinn

Solla um baunir í mat, viðtal við Albert Guðmundsson frá 1952 og Elín Sigrún lesandi vikunnar

Baunir eru meðal næringarríkustu matvæla sem völ er á og spila stórt hlutverk í heilsusamlegu mataræði. Þær eru einstaklega ríkar af próteini og trefjum og þær styðja við meltingu, hjartaheilsu og stöðugan blóðsykur. En hvernig kemur maður baunum inní matargerðina og þarf til dæmis að leggja allar í bleyti? Sú sem svaraði þessum spurningum var Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla í Grænum kosti eða Solla í Gló. Við komum ekki að tómum kofanum hjá henni þegar kom að baunum, frekar en öðru þegar kemur að grænmetisfæði.

Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom enn með gullmola úr safni Útvarpsins og í dag var það viðtal við knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson í París sem var tekið af Daða Hjörvar 9.febrúar 1952. Albert ræðir þar um feril sinn í Frakklandi, leikform sitt, meiðsli og gang mála í deildar- og bikarkeppnum. Viðtalið var tekið á lakkplötu og var ekki útvarpað fyrr en tæpum mánuði eftir upptöku. Líklega hefur það tekið tíma að senda lakkplötuna til Íslands á þessum tíma.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í dag var Elín Sigrún Jónsdóttir lögmaður og stofnandi fyrirtækisins Búum vel. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elín Sigrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Enginn venjulegur lesandi e. Alan Bennett

Ótíð í víti e. Gyrðir Elíasson

Varkár e. Margréti Bjarnadóttur

Arfur og umhverfi e. Vigdis Hjorth

Döstädning e. Margareta Magnusson

Ævisaga Gunnars Thoroddsen, e. Guðna Th. Jóhannesson

Náðarstund, söguleg skáldsaga um Agnesi Magnúsdóttur, e. Hönnu Kent

Tónlist í þættinum í dag:

Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)

Bíldudals grænar baunir / Baggalútur (Valgeir Guðjónsson)

Non,je ne regrette rien / Edith Piaf (Dumont & Vaucaire)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,