• 00:04:27Þórður Kristinss. - hugmyndir um karlmennsku
  • 00:18:01Steinunn Ragnarsd.- námskeið um starfslok
  • 00:33:23Jónatan Garðarsson um Megas

Mannlegi þátturinn

Leyft öllum aldurshópum

Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas

Við veltum fyrir okkur hugmyndum um karlmennsku í dag með Þórði Kristinssyni kennara og doktorsnema í menntavísindum en hann veltir mikið fyrir sér karlmennskuhugmyndum og hvaða hugmyndir hafa karlmenn um karlmennsku. Hverjar eru fyrirmyndirnar? Nýlega birtust niðurstöður úr rannókn sem var unnin að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu karlmanna á Norðurlöndunum og hugmyndir þeirra um karlmennsku. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið mikla athygli þó það sé rétt að taka fram að sett hafa verið spurningamerki við það hvernig hún var unnin, að úrtakið hafi verið skekkt. En spurningarnar og efnið voru áhugaverð og við ræddum það við Þórð í þættinum.

Hver erum við þegar starfstitillinn er ekki lengur til staðar, við starfslok? Hvernig getum við skapað okkur ný tækifæri, nýjan tilgang og hlutverk og um leið haldið félagslegri virkni og tengslum þegar við erum ekki lengur hluti af samfélagi vinnustaðarins. Þetta er allt hluti af því að hætta að vinna, en starfslokin og þau tímamót eru eitt mesta breytingaskeið ævinnar. Við forvitnuðumst um námskeið um fjallar um undirbúning fyrir starfslok sem Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi stendur fyrir, hún sagði okkur frá í þættinum í dag.

Jónatan Garðarsson kom svo í þáttinn í dag hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Megas og fór yfir langan feril hans, en Megast lést í sumar.

Tónlist í þættinum:

Girl From Before / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson)

Allur lurkum laminn / Bjarni Ara (Hilmar Oddsson)

Spáðu í mig / Megas (Megas, Magnús Þór Jónsson)

Tvær stjörnur / Ragnheiður Gröndal (Megas)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,