Við fræddumst í dag um heimsmeitaramótið PingpongParkison sem fer fram í Hannover í Þýskalandi í lok september. Hannes Guðrúnarson, borðtennisþjálfari og Vilborg Jónsdóttir, sem keppir fyrir hönd Íslands á mótinu, komu í þáttinn í dag. Borðtennis er, að þeirra sögn, eitt það besta fyrir fólk með parkinson. Parkinson hefur mörg ólík einkenni, eitt það þekktasta er skjálfti í höndum, en við borðtennisiðkun minnkar skjálftinn og ekki bara á meðan spilað er. Þau Hannes og Vilborg sögðu okkur betur frá þessu í dag.
Er hægt að hlúa að sjálfum sér samhliða því að huga að öðrum og takast á við krefjandi verkefni? Rannsóknir sýna að einstaklingar sem sinna störfum sem fela í sér aðhlynningu fólks, geta verið útsettir fyrir neikvæðum heilsufarslegum áhrifum. Hins vegar sýna rannsóknir einnig fram á að samkennd getur dregið úr neikvæðum áhrifum. Við ræddum við Sólveigu Fríðu Kjærnested sérfræðing í klíniskri sálfræði í þættinum.
Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo á sínum stað eftir sumarfrí og verður áfram í þættinum annan hvern þriðjudag. Við veltum fyrir okkur haustveðrinu, þó september sé skilgreindur sem sumarmánuður í veðurfræðinni hér á landi. Næturfrost, lægðarspá, monsúnvindar og skyndiflóð komu við sögu.
Tónlist í þættinum í dag:
Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
Óralangt / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
Wrap Your Troubles in Dreams / Dean Martin (Moll, Barris & Koehler)
Singing in the Rain / Dave Brubeck Trio (Brown & Freed)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR