Mannlegi þátturinn

PingPongParkinson, að huga að öðrum og sjálfum sér og næturfrost í veðurspjallinu

Við fræddumst í dag um heimsmeitaramótið PingpongParkison sem fer fram í Hannover í Þýskalandi í lok september. Hannes Guðrúnarson, borðtennisþjálfari og Vilborg Jónsdóttir, sem keppir fyrir hönd Íslands á mótinu, komu í þáttinn í dag. Borðtennis er, þeirra sögn, eitt það besta fyrir fólk með parkinson. Parkinson hefur mörg ólík einkenni, eitt það þekktasta er skjálfti í höndum, en við borðtennisiðkun minnkar skjálftinn og ekki bara á meðan spilað er. Þau Hannes og Vilborg sögðu okkur betur frá þessu í dag.

Er hægt hlúa sjálfum sér samhliða því huga öðrum og takast á við krefjandi verkefni? Rannsóknir sýna einstaklingar sem sinna störfum sem fela í sér aðhlynningu fólks, geta verið útsettir fyrir neikvæðum heilsufarslegum áhrifum. Hins vegar sýna rannsóknir einnig fram á samkennd getur dregið úr neikvæðum áhrifum. Við ræddum við Sólveigu Fríðu Kjærnested sérfræðing í klíniskri sálfræði í þættinum.

Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo á sínum stað eftir sumarfrí og verður áfram í þættinum annan hvern þriðjudag. Við veltum fyrir okkur haustveðrinu, þó september skilgreindur sem sumarmánuður í veðurfræðinni hér á landi. Næturfrost, lægðarspá, monsúnvindar og skyndiflóð komu við sögu.

Tónlist í þættinum í dag:

Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson)

Óralangt / Mannakorn (Magnús Eiríksson)

Wrap Your Troubles in Dreams / Dean Martin (Moll, Barris & Koehler)

Singing in the Rain / Dave Brubeck Trio (Brown & Freed)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

1. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,