
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Tölvuþrjótar hafa gert milljónir innbrotstilrauna frá því að öryggisgalli fannst í forritunarmálinu PHP. Hættuástand er ekki yfirstaðið.
Stjórnvöld í Rússlandi eru opin fyrir viðræðum um frið í Úkraínu og forseti Bandaríkjanna telur endalok stríðsins aldei hafa verið nær. Hernaðarsagnfræðingur setur fyrirvara við yfirlýsingar Bandaríkjaforseta.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Seðlabankann í morgun af bótakröfu fyrrverandi forstjóra Samherja . Hann krafðist bóta vegna gagnameðferðar bankans eftir húsleit 2012 þegar Samherji sætti rannsókn vegna gruns um brot á gjaldeyrislögum.
Heimsmarkaðsverð hráolíu hækkar enn og nálgast hámarksverð frá því í vor. Engin merki eru um að átökum Bandaríkjanna og Írans linni.
Flothringur af sjókví, sem var strand í Patreksfirði í fimm vikur, var á reki um fjörðinn í gærkvöld og nótt. Viðbragðsaðilar á Patreksfirði vissu ekki af því.
Tími dekkjaskipta er runninn upp og víða örtröð á dekkjaverkstæðum á höfuðborgarsvæðinu.

Útvarpsfréttir.