Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. ágúst 2026

Landsmenn kjósa í dag um hvort hefja eigi á aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörsókn það sem af er degi er víðast hvar meiri en í kosningum undanfarinna ára.

Fjöldi erlendra fréttamanna fylgdi Kristrúnu Frostadóttur á kjörstað í Álftamýrarskóla í morgun.

Skoðanakannanir eru hnífjafnar og útilokað segja til um hver úrslitin verða segir stjórnmálafræðingur. Ólíklegt nei felli ríkisstjórnina..

Lítið jökulhlaup er hafið í Múlakvísl. Vatnshæð árinnar hefur ekki hækkað en ferðamenn eru beðnir sýna aðgát þar sem gas mælist í grennd hennar.

Tugir létu lífið eftir kröftugar sprengingar í birgðastöð sem geymir skotfæri í útjaðri Kænugarðs. Eldur kviknaði í birgðastöðinni eftir drónaárás Rússa.

Hvolsvöllur flæðir í kjötsúpu í dag. Um þúsund lítrar af súpunni góðu renna ofan í gesti tuttugustu kjötsúpuhátíðarinnar.

og Gróttukonur geta í dag unnið sér inn þátttökurétt í efstu deild kvenna í fótbolta í fyrsta sinn í sögu félagsins og Afturelding getur tryggt sér sigur í Lengjudeild karla.

Birt

29. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,