Landsmenn kjósa í dag um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kjörsókn það sem af er degi er víðast hvar meiri en í kosningum undanfarinna ára.
Fjöldi erlendra fréttamanna fylgdi Kristrúnu Frostadóttur á kjörstað í Álftamýrarskóla í morgun.
Skoðanakannanir eru hnífjafnar og útilokað að segja til um hver úrslitin verða segir stjórnmálafræðingur. Ólíklegt sé að nei felli ríkisstjórnina..
Lítið jökulhlaup er hafið í Múlakvísl. Vatnshæð árinnar hefur ekki hækkað en ferðamenn eru beðnir að sýna aðgát þar sem gas mælist í grennd hennar.
Tugir létu lífið eftir kröftugar sprengingar í birgðastöð sem geymir skotfæri í útjaðri Kænugarðs. Eldur kviknaði í birgðastöðinni eftir drónaárás Rússa.
Hvolsvöllur flæðir í kjötsúpu í dag. Um þúsund lítrar af súpunni góðu renna ofan í gesti tuttugustu kjötsúpuhátíðarinnar.
og Gróttukonur geta í dag unnið sér inn þátttökurétt í efstu deild kvenna í fótbolta í fyrsta sinn í sögu félagsins og Afturelding getur tryggt sér sigur í Lengjudeild karla.