
Árni Kristjánsson ræðir við fólk úr Skaftárhreppi um áhrif tíðra eldgosa á líf fólksins í hreppnum. Rætt er við Ólaf Pétursson á Giljum, Ingibjörgu Þórarinsdóttur frá Þykkvabæ í Landbroti, Jón Pál Jónsson frá Svínafelli, Dórótheu Theódórsdóttur sem er þýsk og Arnhildi Helgadóttur, barnabarn Dórótheu. Jafnframt heyrist brot úr viðtali við Gísla Tómasson sem var bóndi á Melhóli.
(Áður á dagskrá 2011)
Árni Kristjánsson ræðir við fólk úr Skaftárhreppi um áhrif tíðra eldgosa á líf fólksins í hreppnum. Rætt er við Ólaf Pétursson á Giljum, Ingibjörgu Þórarinsdóttur frá Þykkvabæ í Landbroti, Jón Pál Jónsson frá Svínafelli, Dórótheu Theódórsdóttur sem er þýsk og Arnhildi Helgadóttur, barnabarn Dórótheu. Jafnframt heyrist brot úr viðtali við Gísla Tómasson sem var bóndi á Melhóli.

Útvarpsfréttir.

Sinfónía nr. 4 í A-dúr op. 90, Ítalska sinfónían Felix Mendelssohn Sinfóníuhljómsveit Lundúna leikur;
1. Allegro vivace Claudio Abbado stjórnar
2. Andante con moto
3. Con moto moderato
4. Saltarello. Presto
Ljóð án orða Felix Mendelssohn
Tveir gondólasöngvar frá Feneyjum:
- Ljóð án orða ópus 19 nr. 6
- Ljóð án orða op. 30 nr. 6
Ljóð án orða ópus 67 nr. 3 - Andante tranquillo
Ljóð án orða ópus 120 nr. 6 - Andante
Varations sérieuses, 17 tilbrigði op. 54
Javier Perianes leikur á píanó


Þúsundir smáskilaboða eru send á hverri sekúndu og samskipti heillar kynslóðar eru bara til á rafrænu formi. Lengi vel reyndust bréfaskriftir fólks góð heimild um samtíma þess, tilfinningar og hugðarefni - en enginn sendir bréf lengur. Eða hvað? Í þessum þætti veltum við vöngum um gildi handskrifaðra bréfa í nútímasamfélagi.
Viðmælendur: Ástráður Eysteinsson, Una Kjerúlf og Þórdís Gísladóttir.
Umsjón: Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Þórður Sævar Jónsson


Veðurstofa Íslands.

Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann. af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist. Hann hélt sérstaklega upp á plötu með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar í Róm á tímum Píusar páfa og þegar Germani heimsótti Ísland á áttunda áratugnum, tókst með þeim óvænt, en djúpstæð vinátta.

Guðsþjónusta frá Grafarvogskirkju á uppstigningardag, sem er dagur aldraðra, flutt af stjórnarfólki í Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar, Gaflarakórnum undir stjórn Kristjönu Þórdísar Ásgeirsdóttur. Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Bára Friðriksdóttir þjónar fyrir altari og er jafnframt ræðumaður.
Lesarar eru sr. Bjarni Þór Bjarnason, Magnea Sverrisdóttir djákni og Hildur Baldursdóttir
TÓNLIST Í MESSUNNI :
Fyrir predikun
Forspil: Sólargeislar, höfundur Guðný Einarsdóttir
770 Ó blessuð vertu sumarsól, T: Páll Ólafsson, L: Ingi T. Lárusson
265 Þig lofar faðir líf og önd, T. Sigurbjörn Einarsson, L: 10. öld – Nicolaus Decius 1523 – Schumann 1539
474 Lofsyngið Drottni, T: Valdemar V. Snævarr, L: Georg F. Händel
630 Heyr himnasmiður, T: Kolbeinn Tumason, L: Þorkell Sigurbjörnsson
Eftir predikun
stólvers – (ekki í sálmabók) Kvæðið um fuglana, T: Davíð Stefánsson, L: Atli Heimir Sveinsson
478 Í dagsins dýrðarmynd, T: Eygló Eyjólfsdóttir, L: Gifford J. Mitchell
242 Megi gæfan þig geyma, írsk keltnesk blessun, T: Bjarni Stefán Konráðsson, L: Nickomo Clarke
Eftirspil: Sálmurinn um Maríu mey, höfundur Bára Grímsdóttir

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Í ágúst 1937 var í fyrsta sinn sendur út í Ríkisútvarpinu þáttur sem tekinn hafði verið upp utandyra. Vilhjálmur Þ. Gíslason fór þá í heimsókn á byggingasvæði Ljósafossvirkjunar við Sogið, tók upp sprengingar og glaðan söng verkamanna en einnig heyrðist í ýmsum verkfræðingum sem stýrðu framkvæmdum, hinum danska Langved, Svíunum Belfrant og Valkan, Árna Daníelssyni og annaðhvort Steingrími Jónssyni eða Sigurði Ólafssyni.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í ellefta þætti af Gulli og grænum skógum er fjallað um tilkomu planta og þróun þeirra í jarðsögulegu samhengi. Fjallað er um ýmis einkenni sem plöntur hafa þróað með sér allt frá súrefnisbyltingunni fyrir meira ein tveimur milljörðum ára. Sérstök áhersla er lögð á þróun plönturíkisins á tímum risaeðlanna en á þeirra tíma kom viðarvöxtur og blómgun til sögunnar. Ljósi er varpað á frumstæðar tegundir og þróaðar tegundir plantna. Þróunarsaga planta er þá einnig sett í samhengi við þróunarsögu sveppa og dýra. Rætt er við sérfræðinga á sviði jarðsögu og jarðfræði, grasafræði og garðyrkju.
Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson og Steinar Björgvinsson.

Staðlaðar setningar eru hluti af lífi okkar allra án þess að við veltum því mikið fyrir okkur. „Góðan dag“ og „gleðileg jól“ eru til dæmis staðlaðar setningar, einnig má nefna setninguna „Eigðu góðan dag“, sem afgreiðslufólk notar oft til að kveðja viðskiptavininn. Sumar staðlaðar setningar lifa öldum saman, aðrar eiga sér styttra líf, og þær geta þannig hjálpað sagnfræðingum að ákvarða aldur texta. Þetta á til dæmis við um setninguna „Eigðu góðan dag“ sem ekki heyrðist á Íslandi fyrr en eftir 1990. Sumar staðlaðar setningar eru áletranir á skiltum. Lengi vel var algengt að í lystigörðum væru skilti með áletruninni „Gangið ekki á grasinu“, en slík skilti eru nú orðin sjaldgæf. Þessi áletrun rataði hins vegar inn í söguna „Palli var einn í heiminum“ sem Jens Sigsgaard samdi árið 1942. Staðlaðar setningar hafa oftar orðið hluti af skáldskap og sönglögum, og um þetta verður fjallað í þættinum „Gangið ekki á grasinu“. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Franklín Magnús.
Um ævintýralega og áhrifamikla Íslandsleiðangra franska landkönnuðarins Paul Gaimard.
Dagskrárgerð: Ásta Andrésdóttir
Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Árið 1839 var haldið fjölmennt Íslendingaboð í Kaupmannahöfn, þar sem Jónas Hallgrímsson og fleiri sjálfstæðishetjur voru meðal gesta. Heiðursgestur var franski landkönnuðurinn Paul Gaimard, sem hafði stýrt tveimur rannsóknarleiðöngrum til Íslands og tekið ástfóstri við land og þjóð. Hver urðu örlög Gaimards og hvaða áhrif höfðu leiðangrar hans á ímynd Íslands og sjálfsmynd bæði fyrr og nú?
Viðmælendur: Árni Snævarr, Æsa Sigurjónsdóttir og Sumarliði R. Ísleifsson.
Umsjón og dagskrárgerð: Ásta Andrésdóttir.
Ritstjórn og framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tónlist:
- Til herra Páls Gaimard í flutningi Hamrahlíðarkórsins.
- Symphonie fantastique, Op. 14: Marche au Supplice (Allegro non troppo) eftir Hector Berlioz flutt af Daniel Harding og Sænsku útvarpshljómsveitinni.
- Langspils kvæðalag og Symfóns kvæðalag í flutningi Spilmanna Ríkínis.

Útvarpsfréttir.

Tónleikaröðin ECHO Rising Stars er liður í verkefni sem Samtök evrópskra tónleikahúsa standa fyrir og veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum sópransöngkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanóleikarans Kunals Lahiry sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 10. maí 2026.
Yfirskrift tónleikanna er Lafði Lazarus, eftir samnefndu ljóði Sylviu Plath. Ljóðið myndar þráð í gegnum efnisskrána sem teygir sig yfir margar aldir og hverfist um stef á boð við frelsi og jafnrétti.
Efnisskrá:
- Music for a while eftir Henry Purcell.
- I have done it again, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.
- Blondel zu Marien D 626 eftir Franz Schubert.
- Do not stand by my grave and weep eftir Carol Anne McGowan.
- The nose, the eye pits, the full set of theeth?, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.
- Interlude og Being Beauteous úr Les illumintaions eftir Benjamin Britten.
- Náðarstef eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur.
- The fist time it happened I was ten, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.
- Der explodierende Kopf eftir Christian Jost.
- Wasserklavier og Oh, Freedom eftir Luciano Berio.
- There is a charge, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann
- By beauteous softness eftir Henry Purcell.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Fréttir

Síðasta rannsóknaræfingin: Smásaga eftir Þórarin Eldjárn. Höfundur les.

frá Veðurstofu Íslands

Hljóðritun frá opnunartónleikum hátíðarinnar í Tómasarkirkjunni Leipzig, 12. júní 2025. Fram koma Kór Tómasarkirkjunnar og Gewandhaus-hljómsveitin í Leipzig og einsöngvararnir Elisabeth Breuer, Gunta Smirnova, Alex Potter, Benedikt Kristjánsson og Manuel Walser. Andreas Reize stjórnar og einleikari á orgel er Johannes Lang.
Á efnisskrá:
- Prelúdía og fúga um nafnið Bach eftir Franz Liszt.
- Sinfonia í d-moll úr kantötunni „Wir müssen durch viel Trübsal“, BWV 146 eftir Johann Sebastian Bach.
- „Tönet, ihr Pauken! Erschallet, Trompeten!“, kantata BWV 214 eftir Johann Sebastian Bach.
- Kyrie og Gloria, úr Messu í -h-moll BWV 232 eftir Johann Sebastian Bach.
Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í ellefta þætti af Gulli og grænum skógum er fjallað um tilkomu planta og þróun þeirra í jarðsögulegu samhengi. Fjallað er um ýmis einkenni sem plöntur hafa þróað með sér allt frá súrefnisbyltingunni fyrir meira ein tveimur milljörðum ára. Sérstök áhersla er lögð á þróun plönturíkisins á tímum risaeðlanna en á þeirra tíma kom viðarvöxtur og blómgun til sögunnar. Ljósi er varpað á frumstæðar tegundir og þróaðar tegundir plantna. Þróunarsaga planta er þá einnig sett í samhengi við þróunarsögu sveppa og dýra. Rætt er við sérfræðinga á sviði jarðsögu og jarðfræði, grasafræði og garðyrkju.
Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson og Steinar Björgvinsson.

Smásaga eftir Selmu Lagerlöf í þýðingu Einars Guðmundssonar
Edda Heiðrún Backman les í hljóðritun frá 2001


frá Veðurstofu Íslands

Í minningu Rúnars Georgssonar saxófónleikara.
Umsjón: Vernharður Linnet.
Minningarþáttur um tónlistarmanninn Rúnar Georgsson, sem lést 30. desember 2013. Hann var fæddur 14. september 1943.
Þann 30. desember 2013 lést Rúnar Georgsson saxófónleikari, sjötugur að aldri. Rúnar var aðeins sex ára gamall er hann byrjaði að koma fram með hljómsveitum, fyrst sem munnhörpuleikari. Sautján ára var hann orðinn atvinnutónlistarmaður.
Rúnar var fyrst og fremst djassleikari og lék með mörgum af stórsaxófónleikurum Bandaríkjanna er þeir heimsóttu Ísland á árunum 1966-68 s.s. Booker Erwin, Jimmy Heath og Clifford Jordan. Löngu sienna blés hann með söngvurum á borð við Beryl Bryden og Richard Boone.
Upptökur Rúnars með Jazzmiðlum, Jazzvöku og Tómasi R. eru orðnar klassískar í íslenskri djasssögu.
Við heyrum úrval af sólóum Rúnars í þessum þætti, ásam broti úr Djassspjalli umsjórnamanns við Rúnar á Rás 2 1986.
Lagalisti:
Magnús Ingimarsson og Rúnar Georgsson: Víkivaki (Jón Múli Árnason) feidist í gítarsóló 3:00
Stef úr Heilsubælinu (Hjörtur Howser) feidist undir tali 0:30
Jazzvaka: Seven Special feidast eftir tenórsóló 3:00
Louis Armstrong: West End blues (King Oliver)
Earl Bostic: Flamingo (Ed Anderson)
John Coltrane: Giant steps (John Coltrane)
Ómar og Lúdó: Ég hef aldrei nóg (Ómar Ragnarsson) 0:20
Jazzvaka: Móðir mín í kví kví (Gunnar Reynir Sveinsson) 0:50
Clifford Jordan: A tenordance (Clifford Jordan) 6:10
Jazzmiðlar: Lover man (Ram Ramirez) 7:12
Tómas R. Einarsson: Þessi ófétis djass (Tómas R. Einarsson/Eyþór Gunnarsson) 2:50
Beryl Bryden: Basin Street blues(Spencer Williams) 3:00 (7:39-10:39)
Richard Boone: What a wonderful world (Bob Thiele/George David Weiss) 2:50
Jazzvaka; Metitation (A.C.Jobim) -2:35
Guðmundarvaka: Metitation (A.C.Jobim) 3:00
Sif Ragnhildardóttir og Rúnar Georgsson: Það vaxa blóm á þakinu (Jón Múli og Jónas Árnasynir) 2:20

Ragnar Axelsson ljósmyndari hefur í marga áratugi myndað mannlíf á norðurslóðum. Hann hefur farið fjölmargar ferðir til Grænlands, Færeyja og Kanada og skrásett á listrænan hátt líf fólks sem býr í návígi við harðger náttúruöfl. Ljósmyndasýningin Spegill lífsins sem er hluti af Listahátíð í Reykjavík verður opnuð þann 24. Maí. Sýningin er yfirlitssýning á myndum Ragnars undanfarin 40 ár. Þar er bæði að finna myndir hans frá Suðurskautslandinu, Grænlandi, Íslandi og sömuleiðis úrval bestu fréttamynda hans. Í tengslum við þessa sýningu hefur Rás eitt gert þátt um ljósmyndarann Ragnar Axelsson.
Umsjón með þættinum hefur Dagur Gunnarsson, viðmælendur hans eru fyrir utan Ragnar sjálfan þau Gísli Pálsson mannfræðingur, Kristján B. Jónasson útgefandi og Margrét Jónasdóttir kvikmyndaframleiðandi.
Áður á dagskrá árið 2014

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Júlía Margrét Einarsdóttir fylgir hlustendum af stað inn í daginn með léttu spjalli og ljúfum tónum.



Útvarpsfréttir.

Friðrik Ómar þekkir Eurovisionkeppnina og Söngvakeppni Sjónvarpsins frá öllum hliðum.
En er eitthvað gaman að þessu lengur? Í þessum þætti skautar hann yfir Eurovisionkeppnina í ár á methraða.
Enn fremur rifjar hann upp árin þar sem lag og flytjandi voru valin sérstaklega á Íslandi án þess að keppa í Söngvakeppni Sjónvarpsins og önnur brot úr 40 ára sögu Söngvakeppninnar. Þá rifjar hann líka upp þegar gleðin var við völd í Eurovision, spilar skemmtileg lög úr fyrri keppnum og verður auðvitað með ýmsan fróðleik á takteinum. Hann hefur kynnst Eurovisionkeppninni frá mörgum hliðum, staðið á sviðinu sjálfu og verið viðstaddur keppnina margoft.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í ellefta þætti eru árin 2003-2005 til umfjöllunar, þegar Bubbi sendi frá sér plöturnar 1000 kossa nótt, Tvíburann, Í 6 skrefa fjarlægð frá paradís og Ást. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr eftirtöldum þáttum: Árið er, Fréttir, Geymt en ekki gleymt, Laufskálinn, Morgunvaktin, Plata vikunnar, Poppland og Víðsjá.
Viðmælendur í ellefta þætti eru Ásgeir Tómasson, Bubbi Morthens, Freyr Eyjólfsson og Jakob Frímann Magnússon
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Eiríkur Guðmundsson, Freyr Eyjólfsson, Kolbrún Bergþórsdóttir og Ólafur Páll Gunnarsson.
Lagalisti:
Bubbi & Stríð og friður - 1000 kossa nótt
Bubbi & Stríð og friður - Fagur fiskur í sjó
Bubbi & Stríð og friður - Minning
Bubbi & Stríð og friður - Fyrirgefðu mér
Bubbi & Stríð og friður - Öruggt skjól
Bubbi & Stríð og friður - Fastur liður
Bubbi & Stríð og friður - Lífið er dásamlegt
Bubbi Morthens - Íslenskir sjómenn
Bubbi Morthens - Þetta mælti hann
Bubbi Morthens - Lögmálið verður að uppfylla
Bubbi Morthens - Maðurinn er einn
Egó - Mescalin (Live 2004)
Bubbi Morthens - Fallegur dagur
Bubbi - Ástin mín
Bubbi - Hvað þá?
Bubbi - Verður að sleppa
Bubbi - Einn dagur enn
Bubbi - Ástin getur aldrei orðið gömul frétt
Bubbi - Fallegur dagur
Bubbi - Þú
Bubbi - Vonin blíð
Bubbi - Breiðstræti ástarinnar
Bubbi - Lífsins ljós
Bubbi - Þú sem ert mér fjær (live)

Útvarpsfréttir.

Í tilefni af 85 ára afmæli Bobs Dylans útvörpum við upptöku frá tónleikum sem haldnir voru honum til heiðurs í Silfurbergi í Hörpu 28. maí 2011.
Meðal þeirra sem sungu lög Dylans við undirleik Memfismafíunnar voru Lay Low, Bubbi, Björgvin Halldórsson, Sigurður Guðmundsson, KK, Þorsteinn Einarsson ofl.

Fréttir

Matthías Már spilar létta tóna í eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Fjallað verður um rofið á milli listgreina með sérstaka áherslu á samband hljóðs og myndar. Í þáttunum segja listamenn frá eigin rofum í listsköpun, mómentið þegar miðlar mætast, skarast eða brjóta upp hefðbundin mörk eða viðmið. Samtölin varpa ljósi á hvernig slík rof móta bæði listsköpunina sjálfa og hvernig listheimurinn virkar, kerfislegt mengi og listþróun í þessu samhengi.
Umsjón: Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir.
Að þessu sinni í þættinum Rof deilir Ásta Fanney með okkur sínum verkum sem takast á við rofið á milli listheima. Í upphafi þáttar heyrum við í verkinu Atlas eftir Ástu Fanney.

Tónlist að hætti hússins.