22:08
Rúnar Georgsson - náttúrubarn Íslandsdjassins

Í minningu Rúnars Georgssonar saxófónleikara.

Umsjón: Vernharður Linnet.

Minningarþáttur um tónlistarmanninn Rúnar Georgsson, sem lést 30. desember 2013. Hann var fæddur 14. september 1943.

Þann 30. desember 2013 lést Rúnar Georgsson saxófónleikari, sjötugur að aldri. Rúnar var aðeins sex ára gamall er hann byrjaði að koma fram með hljómsveitum, fyrst sem munnhörpuleikari. Sautján ára var hann orðinn atvinnutónlistarmaður.

Rúnar var fyrst og fremst djassleikari og lék með mörgum af stórsaxófónleikurum Bandaríkjanna er þeir heimsóttu Ísland á árunum 1966-68 s.s. Booker Erwin, Jimmy Heath og Clifford Jordan. Löngu sienna blés hann með söngvurum á borð við Beryl Bryden og Richard Boone.

Upptökur Rúnars með Jazzmiðlum, Jazzvöku og Tómasi R. eru orðnar klassískar í íslenskri djasssögu.

Við heyrum úrval af sólóum Rúnars í þessum þætti, ásam broti úr Djassspjalli umsjórnamanns við Rúnar á Rás 2 1986.

Lagalisti:

Magnús Ingimarsson og Rúnar Georgsson: Víkivaki (Jón Múli Árnason) feidist í gítarsóló 3:00

Stef úr Heilsubælinu (Hjörtur Howser) feidist undir tali 0:30

Jazzvaka: Seven Special feidast eftir tenórsóló 3:00

Louis Armstrong: West End blues (King Oliver)

Earl Bostic: Flamingo (Ed Anderson)

John Coltrane: Giant steps (John Coltrane)

Ómar og Lúdó: Ég hef aldrei nóg (Ómar Ragnarsson) 0:20

Jazzvaka: Móðir mín í kví kví (Gunnar Reynir Sveinsson) 0:50

Clifford Jordan: A tenordance (Clifford Jordan) 6:10

Jazzmiðlar: Lover man (Ram Ramirez) 7:12

Tómas R. Einarsson: Þessi ófétis djass (Tómas R. Einarsson/Eyþór Gunnarsson) 2:50

Beryl Bryden: Basin Street blues(Spencer Williams) 3:00 (7:39-10:39)

Richard Boone: What a wonderful world (Bob Thiele/George David Weiss) 2:50

Jazzvaka; Metitation (A.C.Jobim) -2:35

Guðmundarvaka: Metitation (A.C.Jobim) 3:00

Sif Ragnhildardóttir og Rúnar Georgsson: Það vaxa blóm á þakinu (Jón Múli og Jónas Árnasynir) 2:20

Er aðgengilegt til 12. ágúst 2026.
Lengd: 53 mín.
e
Endurflutt.
,