14:00
Gangið ekki á grasinu

Staðlaðar setningar eru hluti af lífi okkar allra án þess að við veltum því mikið fyrir okkur. „Góðan dag“ og „gleðileg jól“ eru til dæmis staðlaðar setningar, einnig má nefna setninguna „Eigðu góðan dag“, sem afgreiðslufólk notar oft til að kveðja viðskiptavininn. Sumar staðlaðar setningar lifa öldum saman, aðrar eiga sér styttra líf, og þær geta þannig hjálpað sagnfræðingum að ákvarða aldur texta. Þetta á til dæmis við um setninguna „Eigðu góðan dag“ sem ekki heyrðist á Íslandi fyrr en eftir 1990. Sumar staðlaðar setningar eru áletranir á skiltum. Lengi vel var algengt að í lystigörðum væru skilti með áletruninni „Gangið ekki á grasinu“, en slík skilti eru nú orðin sjaldgæf. Þessi áletrun rataði hins vegar inn í söguna „Palli var einn í heiminum“ sem Jens Sigsgaard samdi árið 1942. Staðlaðar setningar hafa oftar orðið hluti af skáldskap og sönglögum, og um þetta verður fjallað í þættinum „Gangið ekki á grasinu“. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Franklín Magnús.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
,