12:38
Gamla kortérið
Gamla kortérið 8 -Ljósafoss

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.

Í ágúst 1937 var í fyrsta sinn sendur út í Ríkisútvarpinu þáttur sem tekinn hafði verið upp utandyra. Vilhjálmur Þ. Gíslason fór þá í heimsókn á byggingasvæði Ljósafossvirkjunar við Sogið, tók upp sprengingar og glaðan söng verkamanna en einnig heyrðist í ýmsum verkfræðingum sem stýrðu framkvæmdum, hinum danska Langved, Svíunum Belfrant og Valkan, Árna Daníelssyni og annaðhvort Steingrími Jónssyni eða Sigurði Ólafssyni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,