23:10
Milli tveggja skauta

Ragnar Axelsson ljósmyndari hefur í marga áratugi myndað mannlíf á norðurslóðum. Hann hefur farið fjölmargar ferðir til Grænlands, Færeyja og Kanada og skrásett á listrænan hátt líf fólks sem býr í návígi við harðger náttúruöfl. Ljósmyndasýningin Spegill lífsins sem er hluti af Listahátíð í Reykjavík verður opnuð þann 24. Maí. Sýningin er yfirlitssýning á myndum Ragnars undanfarin 40 ár. Þar er bæði að finna myndir hans frá Suðurskautslandinu, Grænlandi, Íslandi og sömuleiðis úrval bestu fréttamynda hans. Í tengslum við þessa sýningu hefur Rás eitt gert þátt um ljósmyndarann Ragnar Axelsson.

Umsjón með þættinum hefur Dagur Gunnarsson, viðmælendur hans eru fyrir utan Ragnar sjálfan þau Gísli Pálsson mannfræðingur, Kristján B. Jónasson útgefandi og Margrét Jónasdóttir kvikmyndaframleiðandi.

Áður á dagskrá árið 2014

Er aðgengilegt til 12. ágúst 2026.
Lengd: 49 mín.
e
Endurflutt.
,