12:38
Eurovision - Í gegnum súrt og sætt!

Friðrik Ómar þekkir Eurovisionkeppnina og Söngvakeppni Sjónvarpsins frá öllum hliðum.

En er eitthvað gaman að þessu lengur? Í þessum þætti skautar hann yfir Eurovisionkeppnina í ár á methraða.

Enn fremur rifjar hann upp árin þar sem lag og flytjandi voru valin sérstaklega á Íslandi án þess að keppa í Söngvakeppni Sjónvarpsins og önnur brot úr 40 ára sögu Söngvakeppninnar. Þá rifjar hann líka upp þegar gleðin var við völd í Eurovision, spilar skemmtileg lög úr fyrri keppnum og verður auðvitað með ýmsan fróðleik á takteinum. Hann hefur kynnst Eurovisionkeppninni frá mörgum hliðum, staðið á sviðinu sjálfu og verið viðstaddur keppnina margoft.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 21 mín.
,