15:00
Aldrei kærri gestur
2. þáttur – vísindin efla alla dáð

Um ævintýralega og áhrifamikla Íslandsleiðangra franska landkönnuðarins Paul Gaimard.

Dagskrárgerð: Ásta Andrésdóttir

Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Árið 1839 var haldið fjölmennt Íslendingaboð í Kaupmannahöfn, þar sem Jónas Hallgrímsson og fleiri sjálfstæðishetjur voru meðal gesta. Heiðursgestur var franski landkönnuðurinn Paul Gaimard, sem hafði stýrt tveimur rannsóknarleiðöngrum til Íslands og tekið ástfóstri við land og þjóð. Hver urðu örlög Gaimards og hvaða áhrif höfðu leiðangrar hans á ímynd Íslands og sjálfsmynd bæði fyrr og nú?

Viðmælendur: Árni Snævarr, Æsa Sigurjónsdóttir og Sumarliði R. Ísleifsson.

Umsjón og dagskrárgerð: Ásta Andrésdóttir.

Ritstjórn og framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Tónlist:

- Til herra Páls Gaimard í flutningi Hamrahlíðarkórsins.

- Symphonie fantastique, Op. 14: Marche au Supplice (Allegro non troppo) eftir Hector Berlioz flutt af Daniel Harding og Sænsku útvarpshljómsveitinni.

- Langspils kvæðalag og Symfóns kvæðalag í flutningi Spilmanna Ríkínis.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 49 mín.
,