16:05
Rísandi stjörnur
Álfheiður Erla og Kunal Lahiry

Tónleikaröðin ECHO Rising Stars er liður í verkefni sem Samtök evrópskra tónleikahúsa standa fyrir og veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu.

Hljóðritun frá tónleikum sópransöngkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanóleikarans Kunals Lahiry sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 10. maí 2026.

Yfirskrift tónleikanna er Lafði Lazarus, eftir samnefndu ljóði Sylviu Plath. Ljóðið myndar þráð í gegnum efnisskrána sem teygir sig yfir margar aldir og hverfist um stef á boð við frelsi og jafnrétti.

Efnisskrá:

- Music for a while eftir Henry Purcell.

- I have done it again, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.

- Blondel zu Marien D 626 eftir Franz Schubert.

- Do not stand by my grave and weep eftir Carol Anne McGowan.

- The nose, the eye pits, the full set of theeth?, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.

- Interlude og Being Beauteous úr Les illumintaions eftir Benjamin Britten.

- Náðarstef eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur.

- The fist time it happened I was ten, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann.

- Der explodierende Kopf eftir Christian Jost.

- Wasserklavier og Oh, Freedom eftir Luciano Berio.

- There is a charge, úr Lady Lazarus eftir Aribert Reimann

- By beauteous softness eftir Henry Purcell.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 28 mín.
,