09:03
50 grömm innanlands

Þúsundir smáskilaboða eru send á hverri sekúndu og samskipti heillar kynslóðar eru bara til á rafrænu formi. Lengi vel reyndust bréfaskriftir fólks góð heimild um samtíma þess, tilfinningar og hugðarefni - en enginn sendir bréf lengur. Eða hvað? Í þessum þætti veltum við vöngum um gildi handskrifaðra bréfa í nútímasamfélagi.

Viðmælendur: Ástráður Eysteinsson, Una Kjerúlf og Þórdís Gísladóttir.

Umsjón: Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Þórður Sævar Jónsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,