16:05
Síðdegisútvarpið
Frelsissvipting í Reykholti, minkamálið og Kristján Kristjánsson gerir upp ferilinn

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Hljóðupptökur úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar varpa ljósi á atburðarásina þegar palestínskur maður var frelsissviptur og pyntaður í Reykholti í apríl árið 2024. Andri er einn af sex Íslendingum sem hafa verið ákærðir fyrir að hafa beitt manninn grófu margþættu ofbeldi, fjárkúgað hann og frelsissvipt. Eva Björk Benediktsdóttir var í dómsal og fylgdist með fyrsta degi aðalmeðferðar í Hérðasdómi Suðurlands í dag.

Tæpar þrjár vikur eru liðnar frá því að fjölda minka var sleppt lausum í Mosfellsdal. Allt kapp var lagt á að fanga dýrin með skjótum hætti og var sérþjálfuðum minkahundum meðal annars beitt í þeirri aðgerð. En hver er staða málsins í dag? Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar kom til okkar.

Af hverju mæta sum börn ekki í afmæli bekkjarfélaganna sinna? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingkona Flokks fólksins skrifaði áhugaverða grein á Vísi fyrir helgi en þar vekur hún athygli á því að kostnaður við afmælisgjafir geti orðið hindrun fyrir þátttöku barna og þannig verið dulbúin birtingarmynd fátæktar. Við heyrðum í Kolbrúnu í þættinum í dag.

Í gær kvaddi Kristján Kristjánsson Sprengisand sem var á dagskrá Bylgjunnar á sunnudagsmorgnum eftir tæplega áratug við stjórnvölinn. Hann hefur stýrt hundruðum þátta og rætt við þúsundir gesta á þessum tíma. Kristján kom til okkar og fór yfir farinn veg.

Í lok þáttar kom til okkar nýkringdur Íslandsmeistari í golfi karla Dagbjartur Sigurbrandsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,