23:10
Lestin
House of the Dragon, Afsakið á meðan ég æli, Lestin 10 ára

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Sjónvarp verður áberandi í þessum fyrsta Lestarþætti haustsins. Þriðja sería af House of the Dragon kom út í sumar og við ætlum að rýna í hana með sjónvarpsgagnrýnanda Lestarinnar Brynju Hjámsdóttur - þættir í sagnaheimi Krúnuleikanna eftir George RR Martin.

Ljósmyndarinn og heimildarmyndargerðarmaðurinn Spessi kíkir í heimsókn og segir frá heimildarmyndinni Afsakið á meðan ég æli sem hann gerði um Megas. Myndin var frumsýnd árið 2023 en var sýnd á RÚV um helgina.

Og svo fögnum við stórafmæli Lestarinnar, með því að rifja upp fyrsta þáttinn sem fór í loftið fyrir 10 árum. Donald Trump, Gísli Pálmi, Stranger Things, Jón Helgason, Pink Floyd og Aron Can komu meðal annars við sögu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,