12:42
Þetta helst
Saga Suður-Afríkumannsins sem lenti í nýnasistum á Íslandi

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Í lok árs 1964 kom tæplega þrítugur Suður-Afríkumaður hingað til lands og vildi fá inngöngu í Háskóla Íslands. Hann hét Johannes Manong og hafði lent í pólitískum ofsóknum í Suður-Afríku á dögum aðskilnaðarstefnunnar samkvæmt fréttum í blöðum frá þessum tíma.

Áður en Johannes Manong kom til Íslands eftir að hafa flúið frá Suður-Afríku sendi hann bréf á undan sér til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og bað um aðstoð á Íslandi. Úr varð að hann að hann fékk herbergi á Stúdentagörðunum í Vatnsmýri og frítt fæði um tíma á meðan hann væri að koma sér fyrir á Íslandi.

Til þess kom þó aldrei. Í ársbyrjun 1965 sagði Manong frá því í fjölmiðlum að hann hefði orðið fyrir kynþáttaofbeldi frá íslenskum nýnasistum og þess vegna flúið til Svíþjóðar þar sem hann fékk pólitískt hæli um hríð. Í fjölmiðlum á Íslandi var sagt frá því að meðan Manong bjó á Stúdentagörðunum hafi verið brenndur Ku-Klux-Klan kross á lóðinni og hann hafi fengið bréf með hakakrossi þar sem á stóð orðrétt: We are back.

Fjallað er um sögu Johannes Manong og rætt við Heimi Pálsson bókmenntafræðing sem man eftir því þegar Manong kom hingað til lands.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,