19:00
Sumartónleikar
Fiðluleikarinn Marc Bouchkov og Julien Quentin píanóleikari heiðra Jascha Heiftetz á Verbier-hátíðinni

Hljóðritun frá tónleikum Marc Bouchkovs fiðluleikara og píanóleikarans Julien Quentins á Verbier-hátíðinni í Sviss, 31. júlí sl.

Til heiðurs Jascha Heifetz, er yfirskrift tónleikanna og samanstendur efnisskráin af virtúósískum smáverkum í anda fiðluleikarans fræga.

Á meðal höfunda eru Johann Sebastian Bach, Claude Debussy, Camille Saint-Saëns, Isaac Albéniz, Sergej Rakhmanínov og George Gershwin.

Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Er aðgengilegt til 16. september 2026.
Lengd: 1 klst. 23 mín.
e
Endurflutt.
,