15:00
Bubbi og böndin
1. þáttur (1978-1980)

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.

Umsjón: Ásgeir Eyþórsson

Í fyrsta þættinum er fjallað um upphafsárin í tónlistarbransanum og fyrstu sólóplötu Bubba, Ísbjarnarblús. Hér má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er, Geymt en ekki gleymt, Rokklandi, Segðu mér, Það held ég nú og Bubbi í útvarpinu í 10 ár.

Viðmælendur eru Ásmundur Jónsson, Bubbi Morthens, Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Árnason og Silja Aðalsteinsdóttir.

Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Freyr Eyjólfsson, Hjalti Jón Sveinsson, Hreinn Valdimarsson, Kristján Frímann Kristjánsson, Ólafur Páll Gunnarsson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.

Aðstoð við textagerð: Gunnlaugur Jónsson og Jónatan Garðarsson.

Lagalisti:

Bubbi - Pikk fyrir Geira

Bubbi - Don’t think twice it’s, all right

Bubbi - Barnið sefur

Bubbi - Beitningarblús

Bubbi - Elliheimilið Grund

Bubbi - Bryndísarblús

Bubbi - 1. maí í Malaga

Bubbi - Stál og hnífur

Bubbi - Færeyjarblús

Bubbi - Þorskacharleston

Bubbi - Ísbjarnablús

Bubbi - Hrognin eru að koma

Bubbi - Stál og hnífur

Bubbi - Agnes og Friðrik

Bubbi - Jón pönkari

Bubbi - Hollywood

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 53 mín.
,