Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heiðrar Jón Nordal

Birt

2. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heiðrar Jón Nordal

Tónskáldið Jón Nordal fæddist þann 6. mars 1926 og því voru 100 ár liðin frá fæðingu hans í mars sl. Af því tilefni hélt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands glæsilega tónleika til heiðurs tónskáldinu 8. mars sl. þar sem fluttar voru tvær af perlum Jóns, Óttusöngvar vori fyrir tvo einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og Konsert fyrir selló og hljómsveit. Á tónleikunum var einnig frumflutt nýtt verk eftir Daníel Þorsteinsson.

Með hljómsveitinni koma fram sönghópurinn Hljómeyki og Kór Akureyrarkirkju.

Einsöngvarar: Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Hanna Dóra Sturludóttir mezzo-sópran.

Einleikari á selló: Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir.

Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.

,