Tveir þættir um skáldið Kristján frá Djúpalæk.
Umsjón: Hannes Blandon.
Um skáldið Kristján frá Djúpalæk.
Rætt við Sverri Pálsson og hann les úr bókum Kristjáns frá Djúpalæk.
Rætt við séra Bolla Gústavsson og hann les ljóð eftir Kristján og úr bók sinni "Fjögur skáld með presti".
Kristján frá Djúpalæk les nokkur ljóð um angur og trú og Páskaljóð.
Þórhallur Einarsson les síðasta ljóð skáldsins, Minning.
Umsjónarmaður: Hannes Blandon.

Þættir úr partítu fyrir einleiksfiðlu. Sif Margrét Tulinius leikur.
Ave Maria og Gamalt vers. Hljómeyki syngur undir stjórn höfundar.
Kvöldvísur um sumarmál. Hamrahlíðarkórinn syngur; Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar.
Þrír þættir úr Messu fyrir kór.. Cantoque Ensemble syngur; Steinar Logi Helgason stjórnar.
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma.
Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa.
Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum.
Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu.
Viðmælendur:
Prófessor Xiao Chua
Marj Einarsson
Ruben Enaje
Lestur:
Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson
Marj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir
Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal

Veðurstofa Íslands.
Á jólatrésskemmtuninni í Skildi, 1935, létu 10 manns lífið. Þar af sjö börn.
Fleiri hafa ekki farist í bruna á Íslandi, að vitað sé, síðan á Sturlungaöld. Margir hlutu alvarleg brunasár og þeirra beið löng sjúkralega. Missirinn í litlu þorpi var ólýsanlegur. Ósegjanlegur. Og þannig, sveipaður þögn. En ef sögur eru ekki sagðar falla þær í gleymsku, svo nú – 90 árum síðar – minnumst við hinna látnu og varðveitum söguna af Brunanum í Skildi.
Umsjón: Dagný Maggýjar
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen
Það er 30. desember. Árið er 1935.
Veðrið er kyrrt, snjóföl liggur yfir og hiti er rétt undir frostmarki. Að samkomuhúsinu Skildi í Keflavík streymir prúðbúinn hópur ungmenna á seinni jólaskemmtun dagsins.
Lítil hnáta skokkar við hlið bróður í nýrri kápu, systur með krullað hár leiðast og piltar í sparibuxum ærslast. Amma leiðir lítinn dreng sem er örlítið haltur.
Engan grunar hættuna framundan.
Umsjón: Dagný Maggýjardóttir
Ritstjórn: Anna Marsibil Clausen
Skírdagur
Sr. Alfreð Örn Finnsson
Organisti: Kristján Hrannar Pálsson
Kór: Hljóðfall, kór Digranes- og Hjallakirkju, stjórnandi Helga Margrét Marzellíusardóttir
Forspil: Greinir Jesú um græna tréð, Sálmforleikur við ísl. þjóðlag í útsetningu Smára Ólasonar
Fyrir predikun
780 Ég byrja reisu mín Hallgrímur Pétursson, ísl. þjóðlag
260 Miskunna oss, Guð vor John L. Bell
123 Á skírdagskvöld ég kem til þín Guðrún Guðmundsdóttir, Gesius
Ver hjá oss Egil Hovland, Kristín Jóhannesdóttir
Eftir predikun
Númer Heiti lags/sálms Höfundar
Stand by me Ben E. King, Jerry Leiber, Mike Stoller. Útsetning Mark De-Lisser
Syngið, svo hjörtu sem óróleg eru Kristján Hrannar Pálsson, Janne Mark. Útsetning Helga Margrét Marzellíusardóttir
310 Ó, þú Guðs lamb, Kristur Marteinn Lúther
Lullaby into another dimension Helga Margrét Marzellíusardóttir
Undir altarisgöngu verður flutt verkið A Sparrow alighted upon our shoulder eftir Jóhann Jóhannsson, í útsetningu Eyglóar Höskuldsdóttur Viborg
Eftirspil: +0,8°C - Kristján Hrannar Pálsson

Útvarpsfréttir.
Geimfarið Orion með fjórum geimförum um borð er á sporbaug um jörðu og setur stefnuna á tunglið síðar í dag. Þetta er fyrsta mannaða tunglferðin í meira en hálfa öld.
Íranar vara við hörðum gagnárásum eftir hótanir Bandaríkjaforseta í gær um árásir sem færi Íran aftur til steinaldar.
Mennta- og barnamálaráðuneytið telur ekki ástæðu til að endurskoða minnisblað ráðherra um samanburð á skólakerfinu við önnur Evrópuríki. Kennsludagar séu færri en lögbundnir skóladagar.
Veðrið tekur að lægja á stórum hluta landsins síðdegis og í kvöld, að sögn veðurfræðings Vegagerðarinnar. Viðbúið er að vegum á Norður- og Austurlandi verði lokað síðdegis. Gular viðvarnir eru í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra og Miðhálendinu.
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar hafa verið hluti af páskahefð Íslendinga um aldir og verða venju samkvæmt fluttir í heild sinni í Hallgrímskirkju á morgun. Átta lesarar skipta flutningnum á milli sín.
Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Í þættinum mátti heyra fréttaauka Árna Gunnarssonar fréttamanns sem fjallaði um könnun er ungur sálfræðinemi, Grétar L. Marinósson, gerði árið 1968 um áhrif sjónvarpsins á viðhorfa barna til ýmissa hluta. Grétar varð síðar prófessor við Háskóla Íslands. Sú röð fréttaskýringa sem Árni annaðist þessi misserin nefndist Daglegt líf.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er rætt um fjölæringa sem gefið hafa góða raun. Dalaliljan (liljur vallarins) og þistill eru skoðuð sérstaklega út frá táknrænu og kristnu samhengi. Rætt er um fjölæringa út frá ýmsum eiginleikum þeirra, svo sem þekjandi fjölæringa, harðgerða, freka og eitraða – en einnig fjölæringa sem hafa gefið upp öndina í harðindum og er sárt saknað.
Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Eva Dögg Kristjánsdóttir og Steinar Björgvinsson.
Í þættinum verður fjallað um Garðar Cortes óperusöngvara sem fæddist árið 1940 og lést 2023. Garðar var einn af helstu tenórsöngvurum Íslands á síðustu tveimur áratugum 20. aldar, en hann var einnig brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi, stofnaði Söngskólann í Reykjavík árið 1973 og Íslensku óperuna 1979. Árið 1981 fékk hann Bjartsýnisverðlaun Brøstes fyrstur manna. Garðar var skólastjóri Söngskólans og óperustjóri Íslensku óperunnar í mörg ár, og stjórnaði einnig kórum og hljómsveitum. Í þættinum verða fluttar hljóðritanir með söng Garðars, rakinn verður ferill hans og flutt brot úr viðtölum við hann og samstarfsfólk hans. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Að vanda er nóg að gera hjá meðlimum Kriðpleirs, á fjörur þeirra rekur áhugavert verkefni sem gæti breytt öllu fyrir þá og fjölskyldur þeirra. Ragnar og Árni eru til í þetta en Friðgeir er hins vegar á leiðinni til Tene þar sem hann ætlar að freista þess að klára bók fyrir jólin.
Leikarar: Árni Vilhjálmsson, Friðgeir Einarsson, Ragnar Ísleifur Bragason, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Sigrún Hlín Sigurðardóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Ylfa Ösp Áskelsdóttir, Hákon Jóhannesson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Benedikt Nikulás Annes Ketilsson og Jón Kalman Stefánsson.
Hugmynd, handrit og leikstjórn:
Bjarni Jónsson, Friðgeir Einarsson, Árni Vilhjálmsson og Ragnar Ísleifur
Bragason.
Tónlist:
Benni Hemm Hemm.
Hljóðvinnsla:
Gísli Kjaran Kristjánsson.
Rúna pípari kemur að máli við Ragnar og gerir honum tilboð sem er erfitt að hafna. Hann viðrar hugmyndina við aðra meðlimi Kriðpleirs.

Steinunn Harðardóttir fjallar um sagnalist og sögumenn. Sagnalist er gömul listgrein sem fylgt hefur manninum um aldaraðir. Sögumenn hafa ávallt verið aufúsugestir og veitt kærkomna afþreyingu. Í þáttunum Sögum og sagnalist mun Steinunn ræða við nokkra sagnamenn nútímans, einn í hverjum þætti.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2005
Í þættinum er rætt við Berglindi Agnarsdóttur leikskólakennara í Álftaborg um það hvers vegna hún fór að segja sögur. Við heyrum hana segja börnunum tvær sögur.
Snorri Helgason fær til liðs við sig þátttakendur í Reykjavik Folk Festival á þessum tónleikum í Iðnó 20. mars 2026.
Brek: Harpa Þorvaldsdóttir, Jóhann Ingi Benediktsson, Sigmar Þór Matthíasson, Guðmundur Atli Pétursson
Umbra Ensemble: Arngerður María Árnadóttir,
Alexandra Kjeld, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Lilja Dögg Gunnarsdóttir
Svavar Knútur Kristinsson

frá Veðurstofu Íslands
Tónskáldið Jón Nordal fæddist þann 6. mars 1926 og því voru 100 ár liðin frá fæðingu hans í mars sl. Af því tilefni hélt Sinfóníuhljómsveit Norðurlands glæsilega tónleika til heiðurs tónskáldinu 8. mars sl. þar sem fluttar voru tvær af perlum Jóns, Óttusöngvar að vori fyrir tvo einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og Konsert fyrir selló og hljómsveit. Á tónleikunum var einnig frumflutt nýtt verk eftir Daníel Þorsteinsson.
Með hljómsveitinni koma fram sönghópurinn Hljómeyki og Kór Akureyrarkirkju.
Einsöngvarar: Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Hanna Dóra Sturludóttir mezzo-sópran.
Einleikari á selló: Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir.
Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Rúrí kom með skelli inn í íslenskt listalíf á Listahátíð árið 1974 þegar hún rústaði gylltri Bensbifreið með sleggju. Með gjörningnum vildi hún vekja fólk til umhugsunar um efnishyggjusamfélagið og hið eilífa lífsgæðakapphlaup. Hún er algjör frumkvöðull á sviði gjörningalistar hér á landi, og þó víðar væri leitað, en hefur alla tíð unnið sín verk í ólíka miðla þar sem hugmyndin er ávallt grunnforsendan. Að hennar mati dýpkar það listina að hún hafi hugmyndafræðilegt inntak.
Rúrí er gestur Víðsjár í dag þar sem hún ræðir ferilinn, inntak verka sinna, fossa, förur og regnboga, fasisma, einelti og ranglæti svo sitthvað sé nefnt. Og auðvitað verkefnin framundan en Rúrí sýnir um þessar mundir í SIND galleríi og undirbýr sýningar í Vilnius og Sao Paolo.

frá Veðurstofu Íslands
Í janúar voru augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti hótaði að yfirtaka landið, NATÓ virkaði vanmáttugt og óstöðugt, þúsundir mótmæltu á götum úti og síðan, skyndilega, virtist allt vera búið. En hvað svo? Um viku eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti batt enda á hina svokölluðu baráttu um Grænland fóru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og Hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir grænlensku þjóðina?
Í janúar hvíldu augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti var með yfirlýsingar um að hann ætlaði sér að innlima Grænland inn í Bandaríkin.
Um viku eftir að Trump lofaði að beita ekki hervaldi til þess að taka Grænland fórum við til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir Grænlensku þjóðina?
Umsjónarmenn eru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir
Viðmælendur voru
Inga Dóra Guðmundsdóttir
Lis Lindenhann Jokumsen
Bent Jokumsen
Aka Hansen
Martin Zink
Lög sem voru notuð í þættinum
Uummatip tusaataa - Uillut
Aqqusernit - Nive Nielsen and the Deer Children
Timmissat taartut - Nanook
Tupilak - Tarrak
Uummatima feat. Suspekt - Tarrak

Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Það sem kemur mér einna helst á óvart við umræðuefni þáttarins í þetta skiptið er hversu lengi ég var að láta mér detta það í hug. Verandi algjör súkkulaðigrís hefði þetta átt að vera efst á baugi hjá mér en svona er maður stundum mistækur. Við erum kannski á svipuðum slóðum og síðasti þáttur, enda frekar líklegast að dópamín spili eitthvað hlutverk í súkkulaðineyðslu okkar. En förum ekki nánar út í það. Sum ykkar hafa kannski orðið var við umræðu um súkkulaði á síðustu árum, hvaðan það kemur, hver græðir mest á því, er yfir höfuð til nógu mikið súkkulaði fyrir okkur öll eða erum við farin að borða eitthvað súkkulaðilíki? Öllu þessu þarf að komast til botns í, og það munum við reyna í þessum þætti. En við ætlum líka að ræða söguna, hvernig súkkulaði er gert og hversu mikið súkkulaði þarf að til eitthvað geti sagst vera súkkulaði. Kjartan Gíslason þekkir þessi mál betur en flest og ég fékk hann til að setjast niður með mér til að fara yfir þetta allt saman.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Kjartan Gíslason
Júlía Margrét poppar í morgunsárið og býður hlustendum upp á páskalega tónlist og málshætti, og fær til sín góða gesti sem segja frá sínum páskahefðum.
Júlía Margrét var á páskalegum nótum í þætti dagsins. Farið var yfir páskaeggin, málshættina og svo var leikin páskaleg tónlist. Vigdís Hafliðadóttir sagði frá nýjum sjónvarpsþáttum sem hefja göngu sína á RÚV í apríl og Fannar Ingi Friðþjófsson er að leggja lokahönd á nýjustu breiðskífu Hipsumhaps. Þau kíktu bæði í heimsókn og sögðu frá sínum páskahefðum.
Tónlistin sem leikin var í þættinum:
Greiningardeildin, Bogomil Font - Sjóddu frekar egg.
St. Paul & The broken bones - Sushi and Coca-Cola.
Portugal. The man - Tanana.
Daði Freyr Pétursson - Hot damn.
Friðrik Dór Jónsson - Þessi kjóll.
Lykke Li - Lucky Again.
McVie, Christine - Got a Hold on Me.
JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi.
Helgi Björnsson - Allt ljómar.
SYKUR - Svefneyjar.
Elín Hall - Tachylite.
Flott - Tuttugu og eitthvað.
Yahritza y su Esencia, Rosalia - La Perla (Explicit).
Sycamore tree - Forest Rain.
Bríet - Bang Bang.
EURYTHMICS - Here Comes The Rain Again.
JAMIRAQUAI - Virtual Insanity.
Styles, Harry - American Girls.
HIPSUMHAPS - Hjarta.
BSÍ - Vesturbæjar beach.
Greenbaum, Norman - Spirit in the sky.
Memfismafían - Syngdu.
DEPECHE MODE - Personal Jesus.
Frýs - Roll over.
Útvarpsfréttir.
Geimfarið Orion með fjórum geimförum um borð er á sporbaug um jörðu og setur stefnuna á tunglið síðar í dag. Þetta er fyrsta mannaða tunglferðin í meira en hálfa öld.
Íranar vara við hörðum gagnárásum eftir hótanir Bandaríkjaforseta í gær um árásir sem færi Íran aftur til steinaldar.
Mennta- og barnamálaráðuneytið telur ekki ástæðu til að endurskoða minnisblað ráðherra um samanburð á skólakerfinu við önnur Evrópuríki. Kennsludagar séu færri en lögbundnir skóladagar.
Veðrið tekur að lægja á stórum hluta landsins síðdegis og í kvöld, að sögn veðurfræðings Vegagerðarinnar. Viðbúið er að vegum á Norður- og Austurlandi verði lokað síðdegis. Gular viðvarnir eru í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra og Miðhálendinu.
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar hafa verið hluti af páskahefð Íslendinga um aldir og verða venju samkvæmt fluttir í heild sinni í Hallgrímskirkju á morgun. Átta lesarar skipta flutningnum á milli sín.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson.
Doddi stjórnaði Páskaverkum dagsins og heyrði í fólki víða um land.
Þórgnýr Dýrfjörð sagði okkur hvað er að gerast um páskana á Akureyri!
Sigurjón Egilsson sagði okkur frá Fjarðarbyggð, Hanna Sigridur Ásgeirsdóttir frá Fjallabyggð
og Annska Arndal um stemninguna á Ísafirði.
Þðá fékk Doddi nokkra sveitaballapoppara til þess að segja okkur frá þeirra uppáhalds íslenska partýlagi.
Lagalisti dagsins
Tvíhöfði - Páskatíð (Live Síðdegisútvarpið).
GUS GUS, NÝDÖNSK OG HJALTALÍN - Þriggja daga vakt.
Hljómsveit Ingimars Eydal - Hoppsabomm (á skíðum skemmti ég mér).
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Sódóma.
STJÓRNIN - Utan úr geimnum.
AMABADAMA - HossaHossa.
Lúdó og Stefán - Halló Akureyri.
STUÐKOMPANÍIÐ - Tunglskinsdansinn.
Greifarnir - Ást.
STUÐMENN - Tætum og tryllum.
SÚ ELLEN - Kona.
BÍTLAVINAFÉLAGIÐ - Þrisvar Í Viku.
SILFURTÓNAR - Töfrar.
JEFF WHO? - Barfly.
Á MÓTI SÓL - Spenntur.
STUÐMENN - Elsku vinur.
NÝDÖNSK - Fram á nótt.
SKÍTAMÓRALL - Myndir.
Pláhnetan - Funheitur.
DÚKKULÍSUR - Pamela Í Dallas.
Utangarðsmenn - Hiroshima.
BRUNALIÐIÐ - Konur.
Þursaflokkurinn - Jón var kræfur karl og hraustur.
Hermigervill - Íbizafjörður (Aldrei fór ég suður lagið 2020).
SÓLDÖGG - Svört Sól.
HAM - Partýbær.
Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í fyrsta þættinum er fjallað um upphafsárin í tónlistarbransanum og fyrstu sólóplötu Bubba, Ísbjarnarblús. Hér má m.a. heyra valdar klippur úr útvarpsþáttunum Árið er, Geymt en ekki gleymt, Rokklandi, Segðu mér, Það held ég nú og Bubbi í útvarpinu í 10 ár.
Viðmælendur eru Ásmundur Jónsson, Bubbi Morthens, Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Árnason og Silja Aðalsteinsdóttir.
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Freyr Eyjólfsson, Hjalti Jón Sveinsson, Hreinn Valdimarsson, Kristján Frímann Kristjánsson, Ólafur Páll Gunnarsson og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir.
Aðstoð við textagerð: Gunnlaugur Jónsson og Jónatan Garðarsson.
Lagalisti:
Bubbi - Pikk fyrir Geira
Bubbi - Don’t think twice it’s, all right
Bubbi - Barnið sefur
Bubbi - Beitningarblús
Bubbi - Elliheimilið Grund
Bubbi - Bryndísarblús
Bubbi - 1. maí í Malaga
Bubbi - Stál og hnífur
Bubbi - Færeyjarblús
Bubbi - Þorskacharleston
Bubbi - Ísbjarnablús
Bubbi - Hrognin eru að koma
Bubbi - Stál og hnífur
Bubbi - Agnes og Friðrik
Bubbi - Jón pönkari
Bubbi - Hollywood
Í þessum þætti fær tónlistarfólk, sem gerir flest sjálft og ræður gott sem öllu hvað sínar útgáfur varðar, sviðsljósið. Þetta fólk á það sameiginlegt að koma fram undir eigin nafni eða listamannsnafni.
Andri Freyr Viðarsson velur tónlist í þáttinn sem heyrist ekki daglega á Rás 2 þó samt sé um að ræða nokkra góðkunningja stöðvarinnar.

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Skírdagur og trúarlegir tónar í loftinu.
Andervel (José Luis Anderson) kom í heimsókn og strákarnir ræddu uppruna hans í Mexíkó, leiðina til Íslands og væntanlega plötu hans sem kemur út í maí.
Andervel: 00:34:53
Lagalistinn:
Mugison - Jesus is a good name to moan
Bubbi Morthens - Trúir þú á engla
Floni - Engill
Prins Póló - Skærlitað gúmmulaði
GusGus - Arabian horse
Jakobínarína - His lyrics are disastrous
Flott - Segðu það bara
Kælan Mikla - Nornalagið
Andervel - Ironclad and Palm trees
Árstíðir - Heyr himna smiður
Sálin hans Jóns míns - Sódóma
Bang Gang & Esther Talia Cassey - Inside
Agnar Eldberg - Gardening
Hjaltalín - Halo
hOFFMAN - Fallbeygðu mig
Ozzy Osbourne - Crazy train
Tracy Chapman - Fast car
Chantal Kreviazuk - Leaving on a jet plane
arfi - Dark blue night
Mobb Deep - Shook ones pt. II
Sugarcubes - Deus
Oasis - Fuckin' in the bushes
JFDR - Spectator
Judas Priest - Breaking the law