
Bjartsýnn maður hefur upp söng
Í þættinum verður fjallað um Garðar Cortes óperusöngvara sem fæddist árið 1940 og lést 2023. Garðar var einn af helstu tenórsöngvurum Íslands á síðustu tveimur áratugum 20. aldar, en hann var einnig brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi, stofnaði Söngskólann í Reykjavík árið 1973 og Íslensku óperuna 1979. Árið 1981 fékk hann Bjartsýnisverðlaun Brøstes fyrstur manna. Garðar var skólastjóri Söngskólans og óperustjóri Íslensku óperunnar í mörg ár, og stjórnaði einnig kórum og hljómsveitum. Í þættinum verða fluttar hljóðritanir með söng Garðars, rakinn verður ferill hans og flutt brot úr viðtölum við hann og samstarfsfólk hans. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.