23. Hellisgerði: Gróður og saga
Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs.
Í þættinum er rætt um fjölæringa sem gefið hafa góða raun. Dalaliljan (liljur vallarins) og þistill eru skoðuð sérstaklega út frá táknrænu og kristnu samhengi. Rætt er um fjölæringa út frá ýmsum eiginleikum þeirra, svo sem þekjandi fjölæringa, harðgerða, freka og eitraða – en einnig fjölæringa sem hafa gefið upp öndina í harðindum og er sárt saknað.
Viðmælendur eru Guðríður Helgadóttir, Eva Dögg Kristjánsdóttir og Steinar Björgvinsson.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.