23. Hellisgerði: Gróður og saga
Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs.
Í þessum þætti er fjallað um nokkrar vorblómstrandi tegundir – til að mynda páskaliljur, töfratré og kúrileyjakirsi (rósakirsi – cherry blossom). Nokkrur vorblóm eru skoðaðar út frá hlutverki sínu gagnvart býflugum en einnig eru þær settar í samhengi við ummyndanir Óvíds. Kastljósinu er beint sérstaklega að tegundum sem henta býflugum en eru eitraðar mönnum.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.