Gull og grænir skógar

Gróður gerir meira en að þekja: Ilmur, angan, lykt, áferð og skógarbað

Gróður er gjarnan skoðaður út frá sjónrænum áherslum en í þessum þætti er helst dvalið við gróður sem ilmar, allt frá nýslegnu grasi til eplarósar, anganmöðru, geislasóps og balsamþins. Fjallað er um tengsl lyktar, minninga og upplifana. Þá er sérstök áhersla lögð á þá eiginleika gróðurs sem skógarbað hverfist um og áhrifin sem það kallar fram. Rætt er við viðmælendur sem hafa mikla reynslu af skógarbaði, útivist og lengri dvölum á grænum svæðum, þar sem snert er á gróðri og áferð hans könnuð.

Viðmælendur: Heimir B. Janusarson, Íris Lana Birgisdóttir, Gunnþóra Ólafsdóttir, Hannes Hafsteinsson og Steinar Björgvinsson.

Birt

4. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Gull og grænir skógar

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.

Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.

Þættir

,