Sögur úr raunveruleikanum

Leyft öllum aldurshópum

Krossfest: Skírdagur

Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa.

Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum.

Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu.

Viðmælendur:

Prófessor Xiao Chua

Marj Einarsson

Ruben Enaje

Lestur:

Xiao Chua: Hafsteinn Vilhelmsson

Marj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir

Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sögur úr raunveruleikanum

Sannar sögur úr íslenskum samtíma.

Þættir

,