Sögur úr raunveruleikanum

Leyft öllum aldurshópum

Álögin á Vatnsenda 3.þáttur

Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum við hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn.

Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í Kópavogi til að missa ekki jörðina frá sér.

Við sögu koma Þórður Bragason vinur Þorsteins Hjaltested, Vilborg Hjaltested systir Þorsteins, Víðir Smári Petersen prófessor í eignarrétti, Guðjón Ármannsson fyrrum lögmaður Kópavogsbæjar, Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir

Hljóðblöndun: Kormákur Marðarson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sögur úr raunveruleikanum

Sannar sögur úr íslenskum samtíma.

Þættir

,