Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda.