08:05
Fram og til baka
Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.

Rúnar Róbertsson leysir Felix Bergsson af þennan laugardaginn. Bergsveinn Arilíusson, tónlistarmaður, var gestur í Fimmunni og sagði frá fimm stöðum sem hann hefur búið á ásamt því að tengja það við hljómsveitirnar sem hann hefur verið í. Þá tók Rúnar stöðuna á söfnun Krabbameinsfélagsins í Mottumars og talaði við Árna Reyni Alfreðsson hjá Krabbameinsfélaginu og síðar var Rannveig Grétarsdóttir hjá Eldingu á línununi vegna Páskaeggjaleitar í Viðey.

Lagalisti

Sóldögg - Hennar Leiðir

Vinir vors og blóma - Bál (2010)

Hreimur Örn Heimisson, Katla Njálsdóttir, Vinir vors og blóma - Lífið er núna.

Bríet - Hann er ekki þú.

Bogomil Font og Greiningardeildin - Sjóddu frekar egg.

Hjálmar - Gakktu alla leið.

GDRN - Þú sagðir.

Emilíana Torrini - Big Jumps.

Júlí Heiðar og Patri!k - Heim.

Malen og Raven- Right?.

T Rex - Get it on.

Tom Petty - Learning To Fly.

Var aðgengilegt til 23. mars 2025.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,