Skaði

Fimmti þáttur: „Við vorum of sein“

Í september hóf Ríkisendurskoðun, eigin frumkvæði, hraðúttekt á ópíóíðavandanum á Íslandi. Markmiðið var veita áreiðanlegar upplýsingar um stöðu fíknimála á Íslandi og viðbrögð stjórnvalda við þróun í neyslu ópíóíða. Í skýrslunni eru gerðar alvarlegar athugasemdir við viðbrögð stjórnvalda. Þar kemur fram ekkert ráðuneyti eða stofnun hafi tekið forystu þessum málaflokki og stefnuleysi hafi einkennt viðbrögð stjórnvalda við ópíóíðavandanum.

Í þættinum er rætt við Hannes Frey Guðmundsson, Hönnu Sigríði Jósafatsdóttur og Willum Þór Þórsson.

Umsjón: Pétur Magnússon

Tónlist: Gugusar og Annalísa

Ritstjórn og samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen

Frumflutt

21. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Skaði

Skaði

Rás 1 og Fréttastofa RÚV kynna: Um miðjan desember 2023 bárust þau tíðindi landlæknisembættið hefði takmarkað starfsleyfi Árna Tómasar Ragnarssonar gigtarlæknis. Hann gæti ekki lengur skrifað upp á tiltekin lyf fyrir sjúklinga sína. Lyfin sem hann ávísaði voru nefnilega sterk lyfseðilskyld morfínlyf. Þeir sem hann ávísaði þeim til voru einstaklingar með alvarlegan og langvarandi fíknisjúkdóm.

Veitti Árni sjúkum líkn eða olli hann tjóni? Veldur landlæknir sjúklingum skaða með því stíga inn í störf hans? Hvað verður um skjólstæðinga Árna?

Pétur Magnússon fréttamaður kafar í sögu Árna, skjólstæðinga hans og stöðu skaðaminnkunar í íslenska heilbrigðiskerfinu.

Þættir

,