22:14
Litla flugan
Magnús Pétursson

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Litla flugan er á dagskrá Rásar 1 á fimmtudagsmorgnum kl. 10:15 og endurflutt á föstudagskvöldum kl. 22:15. Þar leikur Lana Kolbrún Eddudóttir allskonar tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við KK-sextettinn, Lúdó og Stefán, Monicu Zetterlund og Ragnar Bjarnason. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>

Píanóleikarinn Magnús Pétursson varð á sínum tíma landsfrægur í morgunleikfiminni í útvarpinu, þar sem hann og Valdimar Örnólfsson lyftu anda landsmanna í morgunsárið. Litla flugan dregur fram ýmsar hljóðritanir með Magnúsi, frá árunum 1954-1979, með Leikbræðrum, Neo-tríóinu, Gesti Þorgrímssyni, Bessa Bjarnasyni, Hönnu Valdísi og Sólskinskórnum, og að sjálfsögðu einn morgunleikfimitíma frá Skúlagötu 4. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 40 mín.
e
Endurflutt.
,