Litla flugan

Magnús Pétursson

Píanóleikarinn Magnús Pétursson varð á sínum tíma landsfrægur í morgunleikfiminni í útvarpinu, þar sem hann og Valdimar Örnólfsson lyftu anda landsmanna í morgunsárið. Litla flugan dregur fram ýmsar hljóðritanir með Magnúsi, frá árunum 1954-1979, með Leikbræðrum, Neo-tríóinu, Gesti Þorgrímssyni, Bessa Bjarnasyni, Hönnu Valdísi og Sólskinskórnum, og sjálfsögðu einn morgunleikfimitíma frá Skúlagötu 4. Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir

Frumflutt

22. mars 2012

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

,