16:05
Síðdegisútvarpið
9.ágúst

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Í dag kom 6. ástandsskýrsla milliríkjanefndar sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar út. Niðurstöður skýrslunnar eru afgerandi og segja helstu vísindamenn heims gluggann vera að lokast. Það þurfi afgerandi aðgerðir og það strax ef koma á veg fyrir óafturkræfa þróun í hlýnun jarðar. Guðfinna Aðalgeirsdóttir prófessor í jöklafræði er ein höfunda skýrslunnar. Við settumst niður með henni í Öskju og tókum hana tali um málið.

Bólu­setn­ing viðkvæmra hópa með örvun­ar­skömmt­um gegn kór­ónu­veirunni mun hefjast að ein­hverju leyti í næstu viku. Þá verða bólu­sett­ir íbú­ar á hjúkr­un­ar­heim­il­um og síðan þeir sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, yfir sex­tugt og þeir sem eru ónæm­is­bæld­ir. Ingileif Jónsdóttir prófessor kemur til okkar og segir okkur frá hvað er búið að rannsaka mikið með þriðja skammtinn af bóluefnum og eins hvort ný bóluefni séu væntanleg á markað og þá hvenær.

Það kom fram í fréttum helgarinnar að björgunarsveitarfólk var ítrekað kallað út vegna göngufólks sem hafði slasast. Við ætlum aðeins að fara yfir stöðuna með Jónasi Guðmyndssyni verkefnastjóra hjá Landsbjörgu.

Þrátt fyrir að vera aðeins 25 ára gamall töframaður þá hefur Einar Aron verið með töfranámskeið fyrir eldri borgara í sumar og hann er hvergi nærri hættur. Hægt er að skrá sig á námskeiðin í félagsmiðstöðum fullorðinna í Reykjavík þáttakendum að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru tilvalin fyrir ömmur og afa sem vilja slá um sig í næsta fjölskylduboði og skemmta börnum og barnabörnum. Einar Aron kemur til okkar á eftir.

Hinsegin dagar voru með afar óhefðbundnu sniði um helgina. Víða var einkennisfána hinsegin fólks flaggað þeim til stuðnings. Ekki féll það þó í kramið hjá öllum því að fánum hinsegin fólks var stolið í skjóli nætur víðsvegar fyrir austan, þar á meðal voru fánar teknir teknir niður við kirkjurnar á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Við heyrum í Degi Fannari Magnússyni sóknarpresti á Austurlandi.

Var aðgengilegt til 09. ágúst 2022.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,