06:50
Morgunútvarpið
9. ágúst - Byggðasafn, pysjur, orðræðuagnir, gullleit og íþróttir

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Í byrjun ágúst barst Byggðasafninu í Skagafirði pakki frá Þýskalandi sem innihélt þrjá gamla muni. Engin útskýring fylgdi pakkanum og starfsmenn safnsins klóruðu sér í höfðinu yfir þessari dularfullu sendingu. Svo kom í ljós að munirnir í pakkanum reyndust vera safngripir sem hurfu af safninu fyrir ríflega 50 árum. Við hringdum í Ingu Katrínu Magnúsdóttur verkefnastjóra og forvitnuðumst um þetta athyglisverða mál.

Nú er mikið um að vera í Vestmannaeyjum enda pysjutímabilið svokallaða hafið. Þá leitar fólk uppi villuráfandi lundapysjur sem sækja í ljósin á landi og kemur þeim til hafs. Marinó Sigursteinsson, eða Mari eins hann er gjarna kallaður, þekkir vel til lundans og pysjunnar og hann var á línunni hjá okkur frá Eyjum og sagði okkur frá lundum og söl.

Helga Hilmisdóttir rannsóknardósent á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum vinnur nú, ásamt teymi sínu, verkefnavinnu sem leggja á grunn að nýrri talmálsorðabók á netinu. Í orðabókinni verður lögð sérstök áhersla á orð og orðasambönd sem erfitt er að skilgreina með hefðbundnum orðabókarskýringum. Þar er átt við t.d. orð, eða orðræðuagnir, eins og sko, nú og ja. Við hringdum í Helgu og heyrðum af þessu forvitnilega verkefni.

Rann­sóknar­boranir eru að hefjast í Þormóðsdal á vegum kanadíska náma- og endur­vinnslu­fé­lagsins St-Geor­ges Eco-Mining Corp sem er móður­fé­lag Iceland Resources ehf., en íslenska félagið hefur í sinni umsjá rann­sóknar­gögn og sýni úr fyrri gull­leitum á Ís­landi og hefur unnið að því að rýna þau gögn og rannsaka að nýju. Þórdís Björk Sigurbjörnsdóttir forstjóri Iceland Resources kom til okkar.

Nú er Ólympíuleikunum lokið og okkar fólk á heimleið svo ekki hringjum við til Japans í þetta skiptið, en Helga Margrét Höskuldsdóttir hoppaði til okkar af íþróttadeildinni og spjallaði um lokadaga leikanna og fleira íþróttatengt frá helginni.

Tónlist:

Mannakorn - Samferða.

Elvis Costello - Alison.

Churces og Robert Smith - How not to drown.

Hjalti og Lára Sóley - Eina nótt.

Mö - Live to survive.

Helgi Björnsson - Ekki ýkja flókið.

Eiríkur Hauksson - Gull.

Dua Lipa - Love again.

Tómas R. og Ragga Gísla - Ávarp undan sænginni.

Sigrid - Mirror.

Ed Sheeran - Bad habits.

Var aðgengilegt til 09. ágúst 2022.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,