12:03
Hádegið
Ný ástandsskýrsla um loftslagsbreytingar og íþróttir á mánudegi

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.

Hitamet, annað hitamet, rigningar, meiri rigningar, geigvænlegir gróðureldar, fleiri geigvænlegir gróðureldar, flóð og aurskriður - allt með hörmulegum afleiðingum fyrir dýr og menn, land og jörð - og allt, eða mikið, víst manninum um að kenna. Og það sem verra er er víst bara rétt byrjunin. Meira af þessu er það sem koma skal. Meira af þessu á enn stærri, meira eyðileggjandi skala. Það er að segja, ef ekki verður gripið inn í og áhrifum loftslagsvárinnar snúið við. En hvað þarf að gerast? Hver verður þróunin ef ekkert verður aðhafst? Við fjöllum um nýja ástandsskýrsla milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) í Hádeginu í dag.

Í seinni hluta þáttarins höldum við uppteknum hætti á mánudögum og fjöllum um íþróttatíðindi helgarinnar. Ólympíuleikarnir kláruðust - en ólympíuleikar fatlaðs fólks eru handan við hornið. Þá vöktu stórtíðindi úr knattspyrnuheiminum hvað mesta athygli um helgina, bæði hérlendis og erlendis.

Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.

Var aðgengilegt til 09. ágúst 2022.
Lengd: 58 mín.
,