19:00
Sumartónleikur
Tónlistarhátíð Þýska útvarpsins í Ettersburghöllinni

Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.

Hljóðritun frá tvennum tónleikum á tónlistarhátíð Þýska útvarpsins sem fram fóru í Ettersburg-höllinni í Weimar í júní sl.

*Frá kammertónleikum 20. júní þar sem sópransöngkonan Ina Kancheva, Lea Birringer fiðluleikari og píanóleikarinn Daniel Helde fluttu verk eftir Manuel de Falla, Pauline Viardot-Garcia, Camille Saint-Säens og Klöru Schumann.

*Frá tónleikum 17. júní þar sem óbóleikarinn Viola Wilmsen og Oliver Triendl píanóleikari fluttu verk eftir baltnesk tónskáld.

Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.

Var aðgengilegt til 08. september 2021.
Lengd: 1 klst. 30 mín.
e
Endurflutt.
,