21:20
Íslendingasögur
Karen Blixen og Mt.Kenya

Allir hafa sögu að segja. Í þættinum Íslendingasögur segir fólkið í landinu sögur; sögur af atburðum sem það hefur upplifað, lífsreynslusögur, gamansögur, alla vega sögur.

Hólmfríður Traustadóttir hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum við Hringbraut fór sem sendifulltrúi til Kenya fyrir 20 árum. Til að undirbúa sig fyrir ferðina horfði hún á myndina Jörð í Afríku sem gerð er eftir bók Karenar Blixen. Myndin hafði mikil áhrif á hana, landið og fólkið en þó sérstaklega dugnaður og kjarkur Karenar. Hólmfríður segir hana hafa blásið sér í brjósti draum um að ganga á hæsta fjall Kenya Mt.Keyna á meðan hún væri í Afríku og með það í huga tók hún með sér lopapeysu til Afríku. Hólmfríður segir frá dvöl sinni í norður Kenja og fólkinu sem þar býr, göngu á Mt Kenya í fylgd með hermönnum og 10 árum síðar á Kilimanjaro.

Sögumaður í þættinum Íslendingasögur, laugardagur 2. feb. 2013 kl. 17.35 er Hólmfríður Traustadóttir hjúkrunarfræðingur

Umsjón Steinunn Harðardóttir [email protected]

Var aðgengilegt til 09. ágúst 2022.
Lengd: 20 mín.
e
Endurflutt.
,