06:50
Morgunvaktin
Nýliðun í landbúnaði er mikilvæg

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Það er mikilvægt að ungt fólk hefji búskap, í húfi er fæðuöryggi þjóðarinnar. Þetta segir Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Nýverið var opnað fyrir umsóknir um styrki til nýliðunar í landbúnaði. Mikill áhugi hefur verið á styrkjunum síðustu ár og líklegt að svo verði einnig nú. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hve margir bændur vilja hætta búskap sökum aldurs eða annars.

Erlendir ferðamenn eru tiltölulega fáséðir á götum Lundúna, Parísar og Kaupmannahafnar. Sigrún Davíðsdóttir, sem búsett er í þeirri fyrstnefndu og hefur heimsótt hinar tvær að undanförnu, sagði frá í Lundúnaspjalli. PCR próf í Lundúnum kostar um 30 þúsund íslenskar krónur. Hún sagði líka frá nýrri kvikmynd Bille August um tiltekinn kafla í lífi Karena Blixen og væntanlegum hljómleikum Víkings Heiðars Ólafssonar á Prom tónlistarhátíðinni sem BBC stendur að.

Hallgrímskirkja í Reykjavík er í 38. sæti á lista lesenda ferðavefjarins Big7travel yfir fegurstu byggingar heims. Sigríður Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Hallgrímskirkju, fagnaði þessu í spjalli um kirkjuna.

Tónlist:

Bréfið hennar Stínu - Diddú,

Cherry Pink and Apple Blossom White - Perez Prado,

Mambo nr. 5 - Perez Prado,

Fólk eins og við þekkjum - Tríó Ómars Guðjónssonar.

Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,