17:03
Beethoven: Byltingarmaður tónlistarinnar
Beethoven verður ástfanginn (1812)

Í þessari röð er fjallað um Ludwig van Beethoven og tónlist hans, í tilefni þess að í desember 2020 voru 250 ár liðin frá fæðingu hans. Leikin eru brot úr tónlist hans, auk þess sem sagt er frá lífi hans og samtíma, fjallað um heyrnarleysi og innri átök, og það hvernig nýstárleg og jafnvel byltingarkennd tónlist hans hafði varanleg áhrif á heim tónlistarinnar. Umsjón: Árni Heimir Ingólfsson. Lesari: Orri Huginn Ágústsson.

Í þessum þætti er fjallað um ástarlíf Beethovens, og ekki síst bréf hans til ástmeyjarinnar ódauðlegu, sem ekki er vitað með vissu hver er. Fjallað verður sérstaklega um tvær konur sem hafa þótt líklegir viðtakendur bréfsins, Antonie Brentano og Josephine Brunswick. Umsjón: Árni Heimir Ingólfsson. Lesari: Orri Huginn Ágústsson.

Tónlist sem flutt er í þættinum:

Píanótríó í Es-dúr, op. 38 (eftir septetti op. 20), 2. kafli

Beaux Arts-tríóið: Menahem Pressler, píanó; Isidore Cohen, fiðla; Bernard Greenhouse, selló

Píanókonsert nr. 5, 2. kafli

Vladimir Ashkenazy, píanó og stjórnandi, Cleveland-hljómsveitin

Píanósónata í Fís-dúr op. 78, 1. kafli

Igor Levit, píanó

Tilbrigði um stef eftir Anton Diabelli, op. 120

Svjatoslav Richter, píanó

An die Geliebte, WoO 140

Anne Sofie von Otter, mezzósópran; Melvyn Tan, píanó

Píanótríó WoO 39

Wilhelm Kempff, píanó; Henryk Szeryng, fiðla; Pierre Fournier, selló

An die ferne Geliebte, lög 1 og 6

Peter Schreier, tenór; András Schiff, píanó

Andante favori, WoO 57

Alice Sara Ott, píanó

Für Elise, WoO 59

Alfred Brendel, píanó

Píanósónata í As-dúr, op. 110, 1. kafli

Igor Levit, píanó

Píanósónata í e-moll, op. 90, 2. kafli

Igor Levit, píanó

Var aðgengilegt til 09. ágúst 2022.
Lengd: 50 mín.
,