12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 9. ágúst 2021

Útvarpsfréttir.

Róttækar aðgerðir þarf í loftslagsmálum ef sporna á við breytingum á loftslagi, Breytingum sem verða æ örari með afdrifaríkum afleiðingum. Viðamikil skýrsla Sameinuðu þjóðanna kom út í dag.

Banaslys varð við Súlur í sunnanverðum Stöðvarfirði í gær þegar ung frönsk kona féll niður bratta hlíð þar sem hún var á göngu ásamt fleirum.

106 covid-smit greindust innanlands í gær og er það í fyrsta skipti sem fjöldi smita fer yfir hundrað að helgi til. 26 liggja á sjúkrahúsi.

Skæðir gróðureldar sem geisað hafa í Grikklandi virðast á undanhaldi. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur er í Aþenu og segir að reykjarmökknum yfir borginni hafi létt í dag.

Íslenskukennsla fyrir börn með annað móðurmál hefur aldrei verið mikilvægari - og grundvöllur fyrir að skapa hér opið samfélag sem allir geti tekið þátt í, segir skipuleggjandi málþings um íslenskukennslu í fjölmenningarsamfélagi.

Knattspyrnukonan og markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir, sem hefur meðal annars leikið 64 A-landsleiki, tilkynnti í dag að hún hefði lagt hanskana á hilluna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,