18:00
Spegillinn
Ný loftslagsskýrsla Sameinuðu þjóðanna

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Spegillinn 9. ágúst 2021

Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir

Loftslagssérfræðingar Sameinuðu þjóðanna vara við því að ef ekki verði dregið mikið úr losun gróðurhúsalofttegunda strax, náist markmið Parísarsamkomulagsins ekki. Ný skýrsla milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna í um loftslagsmál staðfestir að athafnir mannsins eru meginorsök margvíslegra loftslagsbreytinga.

Hjarðónæmi gegn Delta-afbrigði COVID-19 gæti náðst á næsta ári með nýjum útgáfum bóluefna sem veita betri vörn gegn afbrigðinu. Rætt við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, staðgengil sóttvarnalæknis

Forseti Hvíta-Rússland segir viðskiptaþvinganir vesturveldanna geta leitt af sér ófrið, jafnvel þriðju heimsstyrjöld. Hann ber af sér allar sakir um harðneskju í garð andófsfólks.

Starfsmenn á Glaumbæ í Skagafirði voru eitt spurningarmerki þegar dularfull póstsending barst safninu í síðustu viku frá Þýskalandi. Með sendingunni er bundinn endi á 50 ára ráðgátu. Óðinn Svan Óðinsson, ræddi við Ingu Katrínu Magnúsdóttur, verkefnisstjóra hjá Byggðasafni Skagafjarðar.

Ný skýrsla milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál staðfestir að það er beint samband á milli losunar koltvísýrings og hlýnunar jarðar og að aukin losun er af mannavöldum. Stóra verkefni mannkyns er að draga úr losun, segir Guðfinna Aðalgeirsdóttir, prófessor í jöklafræði við Háskóla Íslands sem er einn af aðalhöfundum höfundum skýrslunnar. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hana og Halldór Björnsson, loftslagsfræðing hjá Veðurstofu Íslands.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 30 mín.
,