13:00
Þetta nútímalíf
Óreiðan sem gerir okkur brjáluð

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir

Hvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við það að henda einum hlut? Fá sig jafnvel ekki til þess.

Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.

Viðmælendur:

Arnrún Árnadóttir skipuleggjari

Markús Þórhallsson fréttamaður og sagnfræðingur

Ragna Benedikta Garðarsdóttir prófessor í félagssálfræði

Svala Fanney Snædahl áhrifavaldur og kennari

Þórður Örn Arnarson doktorsnemi í sálfræði

***

Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 56 mín.
,