Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Í dag er dagur íslenskrar náttúru, við gerum því náttúrunni skil. Linda Björk Hallgrímsdóttir aðstoðarþjóðgarðsvörður ræddi við okkur um Skaftafell, þá paradís.
Níutíu ár eru síðan franska rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst við Álftanes á Mýrum og með því yfir 30 manns. Skipið var á leið til heimahafnar eftir stutt stopp í Reykjavík. Illugi Jökulsson kann þessa sögu.
Guðmundur Rúnar Svansson, formaður Ferðafélags Snæfellsness, var líka á línunni og sagði okkur frá nokkrum uppáhaldsstöðum á landinu.
Maður er nefndur Umar Kremlev og er Rússi af auðugra taginu. Hann var í fréttunum fyrr í vikunni þegar í ljós kom að hann greiddi að hluta brúðkaupsveislu sonar Bandaríkjaforseta, á Bahama-eyjum í vor. Þessi náungi er nátengdur æðstu ráðamönnum í Rússlandi og fortíð hans er æði vafasöm. Við heyrðum um hann í síðasta hluta þáttarins, Vera Illugadóttir sagði frá.
Tónlist:
Ómar Ragnarsson - Þar ríkir fegurðin.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Svala Nielsen - Pourquoi pas?.
Ed Sheeran - Thinking out loud.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Örnefni hafa löngum haft áhrif á afstöðu okkar til landslags og sögu og markviss söfnun þeirr hér á landi hófst snemma á síðustu öld. Surtsey reis úr hafi haustið 1963 en þar gefst einstakt færi á að rannsaka nafngiftir svo að segja frá fyrsta degi. Birna Lárusdóttir íslensku- land- og fornleifafræðingur hélt fyrirlestur á mánudaginn þar sem hún talaði um rannsóknir sínar, bæði á vettvangi í Surtsey og á greiningu heimilda, til að skoða rekja ferli örnefna í eynni. Birna fræddi okkur um örnefni í þættinum.
Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki? Hera Guðmundsdóttir menningarmiðlari hefur gert þætti um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja eða segja ekki. Hera fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum. Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir. Þessir þættir hafa vakið mikla athygli og þá er hægt að nálgast í spilaranum á ruv.is en við fengum Heru Guðmundsdóttur til okkar í dag.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í sitt vikulega vísindaspjall. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum sem vekja vonir um lækningu á krabbameini í heila.
Tónlist í þættinum:
Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus-Tómas Guðmundsson)
Kramið hjarta / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson)
Von / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson)
Words / Bee Gees (Bee Gees)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Starfshópur dómsmálaráðherra vill stórfjölga jöfnunarsætum til að jafna vægi atkvæða, án þess þó að fjölga þingmönnum. Lagt er til að þingsæti verði færð úr norðurkjördæmunum tveimur á höfuðborgarsvæðið.
Dómsmálaráðuneytið er komið með augastað á húsnæði á Ásbrú fyrir brottvísunarstöð fyrir einstaklinga. Enn er verið að leita að húsnæði fyrir börn og fjölskyldur.
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins lýsti í morgun áhuga á að veita Kanada aukaaðild að sambandinu. Forsætisráðherra landsins var sérstakur gestur við stefnuræðu hennar á Evrópuþinginu í morgun.
Rafvæðing íslenska strandveiðiflotans er að komast á framleiðslustig eftir tveggja ára undirbúning. Samstarfssamningur við suður-kóreskt fyrirtæki verður undirritaður í dag og stefnt er að því að fyrsti rafbáturinn verði klár til veiða á næsta ári.
90 ár eru síðan franska rannsóknarskipið Porquis Pas? fórst undan Íslandsströndum. 40 menn fórust með skipinu og aðeins einn komst af.
Allir listamenn sem hitað hafa upp fyrir tónleika hins breska Eds Sheeran hafa sagt sig frá tónleikaferðalagi hans í Bandaríkjunum og hljómsveitin sem sá um undirleik fyrir hann líka. Ástæðan er brottrekstur eins úr þeirra hópi fyrir að styðja málstað Palestínu á sviði.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Hvenær er maður hæfur til að eiga banka? Hvernig geta menn verið ótengdir eigum sínum og jafnvel sér sjálfum á Íslandi? Hvers vegna virðast svokallaðar hlutfallstölur, það er að segja hversu stóran eignarhlut fjárfestar eiga í bönkum, þýða annað hér á Íslandi en víðast hvar annars staðar.?
Þessu ætlum við að reyna að svara, í það minnsta velta upp í þætti dagsins.
Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu. Lýður er nú stærsti einkafjárfestirinn í tveimur íslenskum bönkum: Kviku banka og Arion banka. Félag Lýðs á núna 5,5% í Kviku banka, sem gerir hann að fimmta stærsta hluthafa bankans, en einungis fjórir lífeyrissjóðir eiga stærri hluti í bankanum.
Stærstu hluthafar íslenskra banka eru þessir lífeyrissjóðir en þessir sjóðir eru hins vegar ekki mjög virkir hluthafar. Þannig geta einkafjáfestarnir, það er að segja þeir sem ekki eru lífeyrissjóðir, oft og tíðum ráðið talsvert meiru en hluthafallslegur eignarhlutur þeirra virðist bera með sér.
Umsjón: Helgi Seljan
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Hvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við það að henda einum hlut? Fá sig jafnvel ekki til þess.
Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.
Viðmælendur:
Arnrún Árnadóttir skipuleggjari
Markús Þórhallsson fréttamaður og sagnfræðingur
Ragna Benedikta Garðarsdóttir prófessor í félagssálfræði
Svala Fanney Snædahl áhrifavaldur og kennari
Þórður Örn Arnarson doktorsnemi í sálfræði
***
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
With thee I swing - Adlam/Hyde/Stillman - Billie Holiday og hljómsveit Teddy Wilson 1936
Spjall við Ara Braga Kárason úr Morgunglugga Rásar 1 21.júlí 2026
Friends with benefits - Ari Bragi Kárason
Moon River - Henry Mancini - úts Veigar Margeirsson - Ari Bragi Kárason og Eyþór Gunnarsson
Hit me where it hurts - Ari Bragi Kárason
Ballad for my father - Veigar Margeirsson. Stórsveit Reykjavíkur og Ari Bragi Kárason 2026
Spring Rolls - Sölvi Kolbeinsson - Collage 2025
Once more around the sun - Björg Blöndal's C4THERINE - Wild blue younder 2025
Segðu frá - Tómas R Einarsson og GDRN
Yngsti sonur Johanns Sebastians var fjölhæfastur bræðranna á tónsmíðasviðinu og sá víðförlasti. Hann var aðeins 14 ára gamall þegar faðir hans lést og hélt þá áfram tónlistarnámi hjá bróður sínum Carl Philipp Emanuel í Berlín. Um tvítugt yfirgaf hann Norðaustur-Þýskaland, starfssvæði Bach-ættarinnar um tveggja alda skeið, og fluttist til Ítalíu. Hann varð aðstoðarorganisti við Dómkirkjuna í Mílanó 1760 og orðspor hans sem tónskálds barst víða um Evrópu, ekki síst eftir að hann brá enn útaf vana ættarinnar og hóf að semja óperur. Árið 1762 tók hann boði um að semja tvær óperur fyrir King's Theatre í London og upp frá því var höfuðborg hins stækkandi breska heimsveldis heimili hans. Frægðarsól Lundúna-Bachs steig hratt, hann varð tónlistarstjóri drottningarinnar, stóð fyrir fjölsóttum tónleikaröðum ásamt landa sínum Carl Friedrich Abel, fyrrum nemanda föður hans, og varð eftirlæti borgarbúa eins og Händel á undan honum. Þegar hinn átta ára gamli Mozart kom til Lundúna árið 1764 urðu þeir Johann Christian mestu mátar þrátt fyrir aldursmuninn og frægar eru sögur af því er þeir léku fjórhent á sembal, strákurinn sitjandi í fangi eldri kollega síns. Vinsældir Johanns Christians dvínuðu nokkuð á síðustu æviárum hans og fáum árum eftir andlát hans var hann flestum gleymdur. Eitt sinn mun Johann Christian hafa borið sig saman við hinn fræga bróður sinn og sagt: „Carl Philipp Emanuel lifir fyrir tónsmíðarnar, ég lifi á þeim." Þessi ummæli þóttu lengi til marks um að Johann Christian hefði látið ríkjandi smekk ráða för og að tónsmíðar hans ristu ekki ýkja djúpt. Núorðið blandast hinsvegar fáum hugur um að hann var eitt hæfileikaríkasta og áhrifamesta tónskáld snemmklassíska tímans.
Tónlistin í þættinum (eftir Johann Christian Bach):
Fuga, Uber die Buchstaben seines
Namens B.A.G.H - Marie-Claire Alain orge
Sembalstykki i Fd0r r3r N6tnab6k Onnu
Magdalenu Bach (1725) - Michael Behringer semball
Der Weise auf dem Lande (brot) - Markus Schafer tenór og Ludger Remy fortepian0
Salve Regina, 1. Pdttur (brot) -
Emma Kirkby sópran og L'Orfeo Barockorchester;
stjórnandi: Michi Gaigg
Konsert i Esdúr, oP.7 nr. 5,2. kafli - Anthony Halstead fortepianó/stjórnandi og The
Hanover Band
Flautukvartett i Dúr, oP. 19. nr. 2,Camerata Koln
1. kafli(brot)
Adriano in Seria, forleikur,l. kafli (brot) -he Academy of Ancient Music, stjórnandi: Simon
Standage
Pianósónata f Esdúr, oP. 17 nr. 3, - 1. kafli(brot)- Harald Hoeren fortepianó
Pianókonsert i Ddúr, K, 107 - 1. kafli(brot) - Murray Perahia pianó/stjórnandi. English Chamber Orchestra
Lucio Silla, forleikur, 2. kafli(brot)
Amadis des Gaules, Ariette et choeur
(brot) - The Hanover Band; stjórnandi: Anthony Halstead
Sinfónfa i g-moll, 1. kafli - The Academy of Ancient Music; stjórnandi: Simon Standage
Qui tollis peccata mundi, susciPe
deprecationem (úr Gloriu i G) - Kammerkórinn I Namur og hljómsveitin Les Agrémens; stjórnandi: Weiland Kuijken
lnfelice! ln van m'affanno úr La
Clemenza diScipione -Linda Perillo sópran og Das Kleine Konzert: stjórnandi: Hermann Max
--
Goldberg tilbrigði nr 25 - Johann Sebastian Bach - Glenn Gould, píanó
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga, og fylgir vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljós,/himinstjörnur tindra./Eina þreyi eg þig.
Gestur Aldrei las ég Laxness er Bára Gísladóttir, tónskáld sem búsett er í Kaupinhavn. Við tengjumst landa á milli með hjálp nútímatækni og vísinda og ræðum verkið í bærilega góðu hljóði. Hins vegar verður aðeins fjallað um helming verksins í þættinum. Viðsjá mun því ljúka yfirferð á Heimsljósi næsta miðvikudag.
Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Draumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði; samtal við skáldverkin, lífið og listaverkin sem þau hjónin sköpuðu.
Auður Lóa Guðnadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir eru sýningarstjórar en sú síðarnefnda fór með Lestina í leiðsögn.
Í byrjun mánaðarins kom út 8 laga tilraunarafpoppplatan Kuðungur, frumraun tónlistarkonunnar Unu Mistar Óðinsdóttur. Við gerð plötunnar notast hún meðal annars við sérsmíðað hljóðfæri þar sem hún notast við kuðunga og skeljar til að stjórna rafhljóðum. Við ræðum við Unu Mist.
Og við ræðum um nýjustu sjónvarpsveituna í streymishlaðborði Íslendinga, Apple TV.
Fréttir
Fréttir
Flokkur forsætisráðherra Ísraels berst gegn tillögum um að heimila ísraelskum ríkisborgurum erlendis að kjósa í væntanlegum þingkosningum. Útlit er fyrir afar spennandi kosningar.
Sveitarfélög við Breiðafjörð eru ósátt við að stjórnvöld komið ekki til móts við þau vegna tekjutaps meðan ferjan Baldur sigldi milli lands og Eyja í sumar.
Stjórnandi hlaðvarpsins Komið Gott segir fráleitt að það flokkist sem fjölmiðill. Fjölmiðlanefnd telur hlaðvarpið hafa brotið gegn fjölmiðlalögum.
Íslensk listakona opnaði sýningu á verkum sín í Stríðsminjasafninu í Kænugarði í dag.
Sænsku stjórnarflokkarnir misstu meirihluta sinn á þingi þegar stjórnarandstaðan vann nauman sigur
Tveir íslenskir hundar keppa á alþjóðlegu smala(hunda)móti í Skotlandi
Umsjón: Þorgils Jónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Þessi þáttur er helgaður íslenskri náttúru, rétt eins og dagurinn allur, því dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í dag, 16.september.
Af því tilefni afhenti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í Laugarneskirkju. Viðurkenninguna í ár hlaut Andri Snær Magnason, náttúruverndarsinni, rithöfundur og leikstjóri, sem um árabil hefur unnið ötullega að því að vekja athygli almennings jafnt sem ráðamanna á mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar, loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra fyrir náttúruna jafnt sem samfélag manna. Rætt er við Andra Snæ í þættinum, og líka við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

frá Veðurstofu Íslands
Hljóðritun frá lokatónleikum Proms-hátíðarinnar, sumartónlistarhátíðar Breska útvarpsins, sem fram fóru í Royal Albert Hall í London, 12. september.
Fram koma kórar og hljómsveit Breska útvarpsins, BBC.
Einsöngvarar:
Nicky Spence, tenór, Beverley Knight, Sheridan Smith og Ward Thomas
Einleikari: Yuja Wang píanóleikari.
Stjórnandi: Sakari Oramo.
Efnisskrá:
Leonard Bernstein (1918-1990) - Forleikur úr „Candide“
Antonín Dvořák (1841-1904) - Vidino divná, přesladká, ástardúett úr 3. þætti „Rúsölku“
Samuel Barber (1910-1981) - Píanókonsert, op. 38
Dolly Parton (1946-2026) - Heiðurssyrpa - 9 to 5, Jolene, I Will Always Love You
Alexander Tsfasman (1906-1971) - Djasssvíta
Scotch Snap - Syrpa skoskra laga í útsetningu Stuarts Calvert
Anne Dudley (1956) - Iris of Life
Sir Edward Elgar (1857-1934) - Pomp and Circumstance, Mars nr. 1 í D ('Land of Hope and Glory')
Þjóðsöngur bretlands - God Save the King
Auld Lang Syne - Skoskt þjóðlag
Umsjón: Pétur Eggertsson.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir
Hvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við það að henda einum hlut? Fá sig jafnvel ekki til þess.
Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.
Viðmælendur:
Arnrún Árnadóttir skipuleggjari
Markús Þórhallsson fréttamaður og sagnfræðingur
Ragna Benedikta Garðarsdóttir prófessor í félagssálfræði
Svala Fanney Snædahl áhrifavaldur og kennari
Þórður Örn Arnarson doktorsnemi í sálfræði
***
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.


Að loknum 19. lestri Völsunga sögu segir Jórunn Sigurðardóttir frá skáldsögu Guðmundar Daníelssonar Sonur minn Sinfjötli og lesinn lokakafli sögunnar. Vitnað er í ritdóm Jökuls Jakobssonar um söguna sem birtist í 1. hefti Tímarits Máls og menningar 1962 (12,30 mín.)
Frumflutt 20.04.1993

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Örnefni hafa löngum haft áhrif á afstöðu okkar til landslags og sögu og markviss söfnun þeirr hér á landi hófst snemma á síðustu öld. Surtsey reis úr hafi haustið 1963 en þar gefst einstakt færi á að rannsaka nafngiftir svo að segja frá fyrsta degi. Birna Lárusdóttir íslensku- land- og fornleifafræðingur hélt fyrirlestur á mánudaginn þar sem hún talaði um rannsóknir sínar, bæði á vettvangi í Surtsey og á greiningu heimilda, til að skoða rekja ferli örnefna í eynni. Birna fræddi okkur um örnefni í þættinum.
Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki? Hera Guðmundsdóttir menningarmiðlari hefur gert þætti um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja eða segja ekki. Hera fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum. Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir. Þessir þættir hafa vakið mikla athygli og þá er hægt að nálgast í spilaranum á ruv.is en við fengum Heru Guðmundsdóttur til okkar í dag.
Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í sitt vikulega vísindaspjall. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum sem vekja vonir um lækningu á krabbameini í heila.
Tónlist í þættinum:
Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus-Tómas Guðmundsson)
Kramið hjarta / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson)
Von / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson)
Words / Bee Gees (Bee Gees)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Draumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði; samtal við skáldverkin, lífið og listaverkin sem þau hjónin sköpuðu.
Auður Lóa Guðnadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir eru sýningarstjórar en sú síðarnefnda fór með Lestina í leiðsögn.
Í byrjun mánaðarins kom út 8 laga tilraunarafpoppplatan Kuðungur, frumraun tónlistarkonunnar Unu Mistar Óðinsdóttur. Við gerð plötunnar notast hún meðal annars við sérsmíðað hljóðfæri þar sem hún notast við kuðunga og skeljar til að stjórna rafhljóðum. Við ræðum við Unu Mist.
Og við ræðum um nýjustu sjónvarpsveituna í streymishlaðborði Íslendinga, Apple TV.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hanna Katrín Friðriksson var á línunni í Morgunútvarpinu í gær að ræða um væntanlegt laxeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið rekstrarleyfi fyrir laxeldinu en Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður Vár sem berst gegn laxeldinu, segir að formlegt samtal við Seyðfirðinga hafi ekki átt sér stað þrátt fyrir andstöðu þeirra við komu laxeldis. Kaldvík segist hafa átt í góðum samskiptum við sveitarfélagið. Við heyrðum í Benediktu.
Risavaxinn bor verður fluttur að næturlagi inn í Reykjavík á næstu dögum. Þetta hljómar grunsamlega en á sér eðlilegar skýringar því nú stendur til að bora eftir heitu vatni í Laugardag til að tryggja hitaveitu fyrir vaxandi samfélag. Laugarnes og Laugardalur eiga sérstakan sess í sögu hitaveitunnar í Reykjavík og jarðhiti á svæðinu hefur yljað Reykvíkingum í nær heila öld. Níu borholur eru nú þegar í notkun á svæðinu.Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona vatnsmiðla hjá Veitum, mætti til okkar.
Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari segir embættismenn Reykjavíkurborgar reyna að bola íþróttafélaginu Aþenu út úr íþróttahúsinu Austurbergi. Fulltrúi Miðflokksins í íþrótta og útilífsráð lagði til á föstudag að samið yrði við Aþenu á ný en íþróttasviðið segir samningsmál vera í rýni. Brynjar Karl bendir á að 11 börn úr efra-Breiðholti hafi nýtt aðstöðuna í Austurbergi fyrir fjórum árum en segir iðkendafjölda Aþenu stefna í 200. Þarna eru börn sem búa við við fátækt og lítinn félagslegan stuðning, segir Brynjar Karl sem kom til okkar.
Leikkonan og grínistinn Birna Rún Eiríksdóttir snýr fljótlega aftur með nýtt uppistand: Birna bjarga jólunum. Birna sló rækilega í gegn með sýningunni Bremsulaus og er þekkt fyrir hispursleysi, beittan húmor og kraftmikla sviðsframkomu. Birna bakkaði inn í Morgunútvarpið með fullt skott af gríni.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Afbragðs Morgunverk að baki. Gæðaþrenna vikunnar var af fyrstu plötu hljómsveitarinnar Supergrass, I Should Coco frá árinu 1995. Einnig mætti poppkórinn Blika í heimsókn og tók að sjálfsögðu lagið í beinni! Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður sem íslenskaði fyrir okkur Póstin Pál árið 1983 var til tals, um Póstinn auðvitða.
PLÁHNETAN ÁSAMT EMILIÖNU TORRINI – Sæla
SUPERGRASS – Alright
SOUNDGARDEN – Black Hole Sun
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS OG DAÐI FREYR – Hvað með það?
LOVIN' SPOONFUL – Daydream
LAND OG SYNIR – Dreymir
SIN FANG – Young Boys
PRIMAL SCREAM – Loaded (edit)
ROLLING STONES – Fool to Cry
FAITH NO MORE – Easy
LIZZO – About Damn Time
BRUNO MARS – I Just Might
STUÐMENN – Í Bláum Skugga
SUPERGRASS – Caught By The Fuzz
U2 – Where The Streets Have No Name
MAGNÚS ÞÓR SIGMUNDSSON – Pósturinn Páll
THE KILLERS – When You Were Young
DEATH IN VEGAS – Aisha
CAGE THE ELEPHANT – Beaches In Tennessee
AMY WINEHOUSE – Love Is a Losing Game
TRACY CHAPMAN – Fast Car
ELLA LANGLEY – Be Her
SUNDAYS – Here's Where the Story Ends
KRUMMI – Smile Till It Ends
SUPERGRASS – Time
SIMPLY RED – Stars
VALDIMAR – Karlsvagninn
KAISER CHIEFS – Ruby
KENNY ROGERS & THE FIRST EDITION – Ruby, Don't Take Your Love to Town
KAKTUS EINARSSON – New Perfume
SPIN DOCTORS – Two Princes
SPACESTATION – Watching It Happen
FRIÐRIK DÓR OG SINFONIANORD – Hvað er það versta sem gæti gerst?
SYCAMORE TREE – All Tangled Up
SIGUR RÓS – Flugufrelsarinn

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Starfshópur dómsmálaráðherra vill stórfjölga jöfnunarsætum til að jafna vægi atkvæða, án þess þó að fjölga þingmönnum. Lagt er til að þingsæti verði færð úr norðurkjördæmunum tveimur á höfuðborgarsvæðið.
Dómsmálaráðuneytið er komið með augastað á húsnæði á Ásbrú fyrir brottvísunarstöð fyrir einstaklinga. Enn er verið að leita að húsnæði fyrir börn og fjölskyldur.
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins lýsti í morgun áhuga á að veita Kanada aukaaðild að sambandinu. Forsætisráðherra landsins var sérstakur gestur við stefnuræðu hennar á Evrópuþinginu í morgun.
Rafvæðing íslenska strandveiðiflotans er að komast á framleiðslustig eftir tveggja ára undirbúning. Samstarfssamningur við suður-kóreskt fyrirtæki verður undirritaður í dag og stefnt er að því að fyrsti rafbáturinn verði klár til veiða á næsta ári.
90 ár eru síðan franska rannsóknarskipið Porquis Pas? fórst undan Íslandsströndum. 40 menn fórust með skipinu og aðeins einn komst af.
Allir listamenn sem hitað hafa upp fyrir tónleika hins breska Eds Sheeran hafa sagt sig frá tónleikaferðalagi hans í Bandaríkjunum og hljómsveitin sem sá um undirleik fyrir hann líka. Ástæðan er brottrekstur eins úr þeirra hópi fyrir að styðja málstað Palestínu á sviði.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Haustið er komið en það var sól í Popplandi. Lovísa bauð hlustendum upp á góða blöndu af fjölbreyttri tónlist. Allskonar nýtt íslenskt frá Auði, Sæfara. Daða Frey og fleirum, Kaktus Einarsson með plötu vikunnar, upphitun fyrir Eldhúsverkin og þessar helstu tónlistarfréttir.
QUARASHI - Malone Lives.
WISEGUYS - Ooh La La.
Auður - Eyðimörk! Geneva!.
KYGO & DNCE - Dancing Feet.
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
Justin Timberlake - SexyBack.
Lennox, Annie - Mama.
Herb Albert - Garden Party.
Ásgeir Trausti Einarsson - Hunter.
Retro Stefson - Glow.
Kaktus Einarsson - The Decipherer (with RAKEL).
Friends - I'm his girl.
Q-Tip, Mark Ronson and The Business Intl - Bang bang bang.
JAMES INGRAM - Ya mo b there.
Temper City - Self Aware.
Fontaines D.C. - Marianne.
Moses Hightower - Ráðahagur.
Björn Jörundur Friðbjörnsson, Memfismafían - Ég kenni þér um.
Creature of Habit, Birna Eyfjörð, Malen - auðnin.
Sæfari - Mama.
Horan, Niall - Slow hands.
ROXETTE - Sleeping In My Car.
Kooks, The - Naive.
St. Paul & The broken bones - Sushi and Coca-Cola.
DEPECHE MODE - Just can't get enough.
Izleifur, Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig.
Bubbi Morthens - Ég er tilbúinn.
EDDIE RABBITT - Drivin' My Life Away.
Langley, Ella - Be Her.
EMILÍANA TORRINI - Heartstopper.
LAY LOW - Please Don?t Hate Me.
ARIANA GRANDE - petal.
HOT CHOCOLATE - You sexy thing (remix)
CAGE THE ELEPHANT - Beaches in Tennessee.
KEANE - Nothing In My Way.
ALDOUS HARDING & H. HAWKLINE - Venus in the Zinnia.
SOMBR - Homewrecker.
VALDIMAR - Ryðgaður dans.
KAKTUS EINARSSON - Glycerine.
MOBY - Natural Blues.
QUEENS OF THE STONE AGE - Insignificant Other.
ROLLING STONES - Angie.
JÓNFRÍ & LÚPÍNA - Endalaus framtíð.
DAÐI FREYR OG SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS - Hvað með það.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í dag er Dagur íslenskrar náttúru en Landvernd og fleiri samtök standa að boði sem fram fer í Tónabíó á eftir klukkan fimm. Þar á fagna náttúrunni og umhverfisvænni framtíð. Í tilefni dagsins fáum við til okkar Tómas Knútsson sem hefur verið ötull náttúruverndarsinni og duglegur að tína upp rusl í höfnum og á ströndum landsins. Þessa dagana er hann á Landeyjarsandi að tína upp rusl og ætlar að vera þar næstu sex daga. En það er reyndar frí í dag, vegna veðurs og boðsins í Tónabíói. Tómas kom til okkar.
Sýningin Nýtt eldhús eftir máli verður frumsýnd á næstu dögum í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Þar fara með aðalhlutverkin þau Ilmur Kristjánsdóttir og Hilmar Guðjónsson undir leikstjórn Björns Thors. Verkið er eftir Friðgeir Einarsson sem komið hefur víða við í leikhúslífi landans og er t.a.m. einn stofnmeðlima leikhópsins Kriðpleirs sem hefur fært okkur frábær útvarpsleikrit hér á Rás 1. Sýn Friðgeirs Einarssonar á hversdagsleikann er í senn næm, nöpur og fyndin en í þessu nýja verki segir frá því þegar Daníel missir vinnuna virðist athygli hans öll smám saman beinast að eldhúsinnréttingunni á heimilinu.;Möguleikarnir á úrbótum eru svo margir og heillandi en Daníel veitist erfitt að vekja ástríðu konu sinnar, Soffíu, gagnvart verkefninu. Friðgeir sagði okkur frá þessa nýja verki.
Gríðarlega mjótt var á munum í þingkosningunum í Svíðþjóð um liðna helgi. Svo mjótt að það er ekki fyrr en í dag sem úrslit liggja fyrir. Nú taka við stjórnarmyndunarviðræður og gæti tekið nokkurn tíma að skýrast hver verður næsti forsætisráðherra Svíþjóðar. Urður Örlygsdóttir fréttamaður er í Svíþjóð og fór yfir niðurstöðuna með okkur.
Líkt og rætt hefur verið í ýmsum miðlum þá hafa öll upphitunaratriði á tónleikaferð Ed Sheeran um Bandaríkin hætt þátttöku eftir að rapparinn Macklemore var tekinn af dagskrá vegna stuðnings síns við Palestínu og gagnrýni á hernað Ísraels á Gaza. Sömuleiðis hefur Írska þjóðlagahljómsveitin Beoga, sem hefur leikið með Sheeran á sviðinu á öllum tónleikum tónleikaferðarinnar, hætt þátttöku. Macklemore var sakaður um gyðingahatur um leið og hann lýsti yfir stuðningi við Palestínu á tónleikunum þó svo að hann vildi meina að gagnrýni sín á Ísralesstjórn væri ekki gagnrýni á gyðinga almennt. Þetta eru vissulega stórar tilfinningar og Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarfræðingur hefur rýnt í þessi mál og ræddi við okkur í þættinum
Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð skrifar Birna G. Magnadóttir í aðsendri grein á Vísi. Birna sem er samskiptastjóri Fjarskiptastofu og áhugamanneskja um stafrænt öryggi er í greininni að benda okkur á stillingar sem eru í símum flestra okkar sem geta skipt sköpum þegar neyðarástand kemur upp. Hún vill að við gefum okkur fimm mínútur til að stilla símana rétt. Birna fór yfir þetta með okkur í þættinum.
Vefsíðan Glatkistan hefur að geyma ógrynni að upplýsingum og heimildum um íslenska tónlist og tónlistarfólk. Glatkistan er einkaframtak, hugarfóstur Helga Jónssonar sem hefur í fjölmörg ár skráð allt milli himins og jarðar sem stendur íslensku tónlistarlífi nær og er því um mikilvæga menningarsögulega varðveislu að ræða. Framtíð Glatkistunnar er hins vegar óljós, óskað var eftir aðkomu stjórnvalda með einhverjum hætti svo styðja mætti við verkefnið og halda starfseminni gangandi en úr því hefur ekki orðið. Helgi Jónsson frá Glatkistunni sagði okkur allt af létta.
Fréttir
Fréttir
Flokkur forsætisráðherra Ísraels berst gegn tillögum um að heimila ísraelskum ríkisborgurum erlendis að kjósa í væntanlegum þingkosningum. Útlit er fyrir afar spennandi kosningar.
Sveitarfélög við Breiðafjörð eru ósátt við að stjórnvöld komið ekki til móts við þau vegna tekjutaps meðan ferjan Baldur sigldi milli lands og Eyja í sumar.
Stjórnandi hlaðvarpsins Komið Gott segir fráleitt að það flokkist sem fjölmiðill. Fjölmiðlanefnd telur hlaðvarpið hafa brotið gegn fjölmiðlalögum.
Íslensk listakona opnaði sýningu á verkum sín í Stríðsminjasafninu í Kænugarði í dag.
Sænsku stjórnarflokkarnir misstu meirihluta sinn á þingi þegar stjórnarandstaðan vann nauman sigur
Tveir íslenskir hundar keppa á alþjóðlegu smala(hunda)móti í Skotlandi
Umsjón: Þorgils Jónsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Þessi þáttur er helgaður íslenskri náttúru, rétt eins og dagurinn allur, því dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur í dag, 16.september.
Af því tilefni afhenti umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti í Laugarneskirkju. Viðurkenninguna í ár hlaut Andri Snær Magnason, náttúruverndarsinni, rithöfundur og leikstjóri, sem um árabil hefur unnið ötullega að því að vekja athygli almennings jafnt sem ráðamanna á mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar, loftslagsbreytingum og afleiðingum þeirra fyrir náttúruna jafnt sem samfélag manna. Rætt er við Andra Snæ í þættinum, og líka við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Jón Þór Helgason

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Creature of Habit, Malen, Birna Eyfjörð - auðnin.
Beck feat Sierra Ferrell - Ride Lonesome
Langley, Ella - Be Her.
NEIL YOUNG - Don't Let It Bring You Down.
Queens of the Stone Age - Insignificant Other
Aron Can - Fæddur til þess að vera þinn.
Úlfur úlfur - Ég er farinn
Fat Dog - Call It What You Want
Inspector Spacetime - Dansa og Bánsa.
Gorgon City feat. Jem Cooke - Oracle
Sienna Spiro - Great Expectation
Billie Eilish - Chihiro.
Adela - Nicole Kidman
Tove Lo - Des fleurs x stromae
Jungle - Move Like You Do.
Angele - Une seule vie
Kavinsky - Nightcall.
DIIV - Kid
Depeche Mode - Where's the revolution.
Interpol - Iron City
Fontaines D.C. - Marianne.
Johnny Marr - It's Time
MORRISSEY - Rebels Without Applause.
Nothing but Thieves - Baby Kool (Evelyn)
Ásgeir Trausti - Hunter
The Sways - Blue Sky, Don't Cry
This is Lorelei - Oh No Now My
Kurt Vile - Loading Zones
Teitur Magnússon - Askur
Dire Straights - Down To the Waterline
The War On Drugs - Who's That
Ariana Grande - Petal
Arlo Parks & John Glacier - Floette
Joy Crookes x Ravyn Lenae - Feet Don't Fail Me Now (Part 2)
YOUSSOU N´DOUR & NENEH CHERRY - 7 Seconds
Original Koffee - OVA SO
Toots and the Maytals - Warning Warning
Quavo - Trance (Walk It Down)
Cold War Kids - Hang Me Up To Dry (Phantogram Version)
M83 - Blister Sunrise

Umsjón: Andrea Jónsdóttir.