07:03
Morgunvaktin
90 ár frá Pourquoi-pas og dagur íslenskrar náttúru

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Í dag er dagur íslenskrar náttúru, við gerum því náttúrunni skil. Linda Björk Hallgrímsdóttir aðstoðarþjóðgarðsvörður ræddi við okkur um Skaftafell, þá paradís.

Níutíu ár eru síðan franska rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst við Álftanes á Mýrum og með því yfir 30 manns. Skipið var á leið til heimahafnar eftir stutt stopp í Reykjavík. Illugi Jökulsson kann þessa sögu.

Guðmundur Rúnar Svansson, formaður Ferðafélags Snæfellsness, var líka á línunni og sagði okkur frá nokkrum uppáhaldsstöðum á landinu.

Maður er nefndur Umar Kremlev og er Rússi af auðugra taginu. Hann var í fréttunum fyrr í vikunni þegar í ljós kom að hann greiddi að hluta brúðkaupsveislu sonar Bandaríkjaforseta, á Bahama-eyjum í vor. Þessi náungi er nátengdur æðstu ráðamönnum í Rússlandi og fortíð hans er æði vafasöm. Við heyrðum um hann í síðasta hluta þáttarins, Vera Illugadóttir sagði frá.

Tónlist:

Ómar Ragnarsson - Þar ríkir fegurðin.

Sinfóníuhljómsveit Íslands, Svala Nielsen - Pourquoi pas?.

Ed Sheeran - Thinking out loud.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,